fbpx
Miðvikudagur 27.nóvember 2024
Eyjan

Fuglalíf á Tjörninni, framboð aldraðra, handbolti

Egill Helgason
Miðvikudaginn 24. janúar 2007 16:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú erum við Kári búnir að ná einu helsta baráttumáli okkar í gegn. Við fögnum því náttúrlega. Við höfum um árabil tuðað yfir því að ekkert ungviði komist á legg á Reykjavíkurtjörn – þannig hefur það verið ár eftir ár. Eitt árið töldum við að átta andarungar hefðu lifað. Okkar skoðun hefur verið sú að þetta sé mávinum að kenna. Það byggjum við á ótal gönguferðum í kringum Tjörnina.

Við nefndum þetta eitt sinn við áhrifamann í borginni – mikinn vinstrimann sem átti sæti í umhverfisnefnd. Hann tók þessu fjarri – hélt því fram að þetta væri einfaldlega "gangur náttúrunnar". Vildi ekkert gera í málinu. Þetta fannst mér heldur léleg kenning svona í ljósi þess að fuglalífið á Tjörninni er ekkert sérlega "náttúrulegt", stokkandarstofninn sem þar heldur til var settur þarna niður í kringum 1930.

En nú reynist Gísli Marteinn vera bjargvættur – eða er það ekki hann?- borgin ætlar semsé að reyna að hrekja sílamávinn burt og sjá til þess að fuglar á Tjörninni fái nóg æti. Og þá er loks von til að við sjáum aftur andarunga og kríuunga á Tjörninni.

— — —

Nú virðist vera von á því að Framtíðarlandið bjóði fram til Alþingis og einnig er von á lista frá hópi aldraðs fólks og öryrkja. Hvaðan munu þessi framboð taka fylgi? Hugur minn segir að það verði aðallega frá stjórnarandstöðuflokkunum. Það kann að vera rangt. En einhvern veginn held ég að eftir því sem framboðunum fjölgar verði staða Sjálfstæðisflokksins sterkari.

Framboð aldraðra og öryrkja er að sumu leyti kaldar kveðjur til stjórnarandstöðu sem hefur vaðið eld og brennistein fyrir þessa hópa á kjörtímabilinu.

— — —

Nú er ég að fara að horfa á handboltaleikinn. Þeir eru að spila þjóðsöng Íslendinga. Merkilegt að hann er alltof hraður, eins og þeir hafi ýtt á fast forward takkann á bandinu. Nenna kannski ekki að hlusta á hann í fullri lengd. Orri Harðarson segir á bloggi sínu að þetta fallega lag hafi allt í einu verið orðið nasískt.

Tek eftir því að í hléum spila þeir Mezzoforte í íþróttahöllinni þar sem leikurinn fer fram.

— — —

Annars er alveg mátulega skemmtilegt að horfa á handbolta. Má þola það ef maður er líka í tölvunni og kannski að lesa blað og hlusta á tónlist í leiðinni.

Kári var að leika sér í stofunni þegar síðasti leikur var. Ég vissi ekki að hann væri að horfa. Svo sagði hann upp úr einu hljóði:

"Er handbolti einhvern veginn að hrinda?"

"Jú, líklega," sagði ég. "Það er dálítið mikið verið að hrinda."

Svo spurði ég: "Hvað finnst þér skemmtilegast í handbolta?"

"Þegar einhver meiðar sig," svaraði barnið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Óli Björn getur ekki horfst í augu við raunveruleikann – vinstristjórnarsamstarfið er dýrt og sorglegt

Orðið á götunni: Óli Björn getur ekki horfst í augu við raunveruleikann – vinstristjórnarsamstarfið er dýrt og sorglegt
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Björn Jón skrifar – Auðmaður fer með fleipur

Björn Jón skrifar – Auðmaður fer með fleipur
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Óánægjan með Einar og meirihlutann í borginni fer vaxandi en flokkarnir tapa mjög misjafnlega á því

Óánægjan með Einar og meirihlutann í borginni fer vaxandi en flokkarnir tapa mjög misjafnlega á því
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Stórtíðindi í nýrri könnun: Viðreisn spólar fram úr Samfylkingu – Framsókn á útleið?

Stórtíðindi í nýrri könnun: Viðreisn spólar fram úr Samfylkingu – Framsókn á útleið?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sigurður Ingi hjólar af krafti í Sjálfstæðisflokkinn – „Þá hefðum við átt að segja nú er nóg komið“

Sigurður Ingi hjólar af krafti í Sjálfstæðisflokkinn – „Þá hefðum við átt að segja nú er nóg komið“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Arnar Þór Jónsson: Íslensk fyrirtæki og heimili eiga ekki lengur skjól í Valhöll – það er löngu búið að henda þeim þaðan út

Arnar Þór Jónsson: Íslensk fyrirtæki og heimili eiga ekki lengur skjól í Valhöll – það er löngu búið að henda þeim þaðan út