fbpx
Laugardagur 20.júlí 2024
Eyjan

Nýr kúrs á Mogga, kvenkyns leiðtogar, bensínstöð í Vatnsmýri,grísk ferja

Egill Helgason
Föstudaginn 26. janúar 2007 21:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir ráku upp stór augu þegar þeir sáu forsíðu Morgunblaðsins í morgun. Þar var mynd af sakborningum í Baugsmálinu og fyrir neðan fyrirsögn með stríðsletri: Öll sýknuð. Var maður að ruglast – var þetta kannski Baugsmiðillinn Fréttablaðið? Nei, svo var ekki. Hvað er þá að gerast? Er þetta kannskibara til marks um nýja og djarfari framsetningu frétta á Morgunblaðinu – eða á maður að lesa einhver dýpri skilaboð í dæmið?

Kannski að Styrmir Gunnarsson sem hvað harðast hefur pískað Baugsmálið áfram vilji nú efna til sátta? Það virðist líka nánast fullreynt að takist að dæma Baugsmenn fyrir nokkurn skapaðan hlut. Þeir sem verst fara út úr málinu er ákæruvaldið, einhvern virðast þeir Haraldur Johannessen, Jón B. Snorrasson og Sigurður Tómas hálf aumkunarverðir. Það mislukkast allt sem þeir koma nálægt.

Það gefur sáttakenningunni svo vængi að á baksíðu Morgunblaðsins er stór frétt þar sem mikið er gert úr verðlagssvipu sem Bónus hefur brugðið á loft gagnvart framleiðendum og heildsölum.

En hvernig er það annars – kaupir Bónus (og aðrar Baugsverslanir) ekki stóran hluta aðfanga í heildsölu hjá sjálfum sér?

— — —

Áfram um Moggann sem hægrigaurarnir á Vef-Þjóðviljanum eru farnir að kalla dagblaðsútgáfu Veru – og spá nú gjaldþroti. Í Staksteinum var talað um tímamót sem kynnu að verða ef konur tækju við leiðtogaembættum hjá nokkrum stórþjóðum – Hilary Clinton í Bandaríkjunum, Ségolène Royal í Frakklandi, en fyrir er auðvitað Angela Merkel í Þýskalandi. Alveg rétt, þetta er spennandi framtíðarsýn.

En var tilviljun að í Staksteinapistlinum var ekki minnst á Ingibjörgu Sólrúnu. Eða átti maður að lesa á milli línanna – rýna í súbtextann?

— — —

Nú er komin byggð í Vatsmýrina, loksins. Hún er í formi bensínstöðvar sem hefur risið við suðurenda Hljómskálagarðsins og tekur þar ógurlegt flæmi. Maður keyrir um nýju Hringbrautinna, framhjá þessari bensínstöð, inni í miðri borg – maður gæti alveg eins verið staddur einhvers staðar á Vesturlandsveginum.

Þetta er algjör óskapnaður. R-listinn færði okkur Hringbrautina. En gat Sjálfstæðisflokkurinn ekki stoppað bensínstöðina?

Mér reiknast til að í Vesturborginni, innan við Rauðarárstíg séu sjö bensínstöðvar. Það mætti halda að þetta sé arðvænlegur bisness – en bæjarprýði er það ekki.

— — —

Ég er sérfræðingur í grískum ferjum. Það er varla sú ferja sem siglir um Eyjahafið gríska sem ég hef ekki ferðast á. Skipið Aqua Jewel sem Vestmannaeyingar eru að íhuga að festa kaup á er gamall kunningi sem ég hef margsinnis siglt á. Mig minnir að skipið hafi ekki verið neitt framúrskarandi þægilegt og af því fór það orð að það ætti til að velta mikið ef gerði vind – sem er mjög algengt í kringum Mykonos og Paros þar sem Aqua Jewel hefur aðallega siglt. Þar var skipið í samkeppni við fley frá miklu stærri skipafélögum og hefur líklega orðið undir á endanum. Nú les ég reyndar á vefnum að á því hafi verð gerðar einhverjar endurbætur og veltingurinn sé ekki svo slæmur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Ráðamenn sem hossa sjálfum sér

Björn Jón skrifar: Ráðamenn sem hossa sjálfum sér
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun