fbpx
Laugardagur 20.júlí 2024
Eyjan

Kosningavíxlar, samgönguáætlun, loftslagsbreytingar, prumpandi kýr

Egill Helgason
Laugardaginn 3. febrúar 2007 20:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Loforðasúpa ráðherra fyrir kosningar er gengin langt út í öfgar. Hví leggur samgönguráðherra fram samgönguáætlun þremur mánuðum fyrir kosningar? Er það ekki í hæsta máta óeðlilegt? Býst einhver við því að Sturla Böðvarsson verði ráðherra eftir kosningarnar? Eru loforð hans einhvers virði? Heyrir maður til dæmis um stjórnanda fyrirtækis sem leggur fram allsherjar stefnu fyrir starfsemina – nokkrum dögum áður en ráðgert er að hann láti af störfum?

Og Guðni Ágústsson. Hví er hann að undirrita risasamning við sauðfjárbændur rétt fyrir kosningar? Væri ekki eðlilegra að nýr ráðherra skoðaði málin, gerði slíkan samning eða gerði hann ekki?

Hið sama gildir um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og loforð hennar um auknar fjárveitingar til Háskóla Íslands, Siv Friðleifsdóttur sem lætur prenta bækling um sýn sína í öldrunarþjónustu – og svo skilst manni að ríkisstjórnin ætli að fara að kynna umhverfisstefnu.

Svona breytast ráðuneytin í kosningaskrifstofur. Þetta kallast kosningavíxlar og eru alsiða í pólitíkinni. En ekkert betri fyrir það.

— — —

Annars tók ég eftir því að í samgönguáætlun Sturlu er gert ráð fyrir peningum til mislægra gatnamóta á mótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Þetta er einhver mesta óþurftarframkvæmd sem um getur, eftir að þarna komu tvöföld beygjuljós. Svo mun þetta mannvirki útheimta annað eins niðri í Lönguhlíð þar sem hinn raunverulegi flöskuháls er. Framtíðin er nýjar leiðir út úr borginni – Hlíðarfótur og vonandi líka brú yfir Skerjafjörð en með henni væri hægt að komast á örskotsstundu milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar.

Svo brúum við þaðan yfir í Straumsvík og þá er ekkert mál að flytja innanlandsflugið til Keflavíkur. Nema að við komum því fyrir á Álftanesi.

— — —

Ég fékk skammir fyrir að skrifa um gróðurhúsaáhrif í pínu léttúðugum tóni hérna um daginn. Sannar reyndar það sem ég var að segja – innan skamms verður þetta orðinn nýr rétttrúnaður. Nú eru í gildi lög um að ekki megi tala um reykingar nema í neikvæðum tóni í fjölmiðlum, bráðum verður sama bannhelgi farin að ríkja í loftslagsmálunum.

Maður mun ekki voga sér reykja, flokka allt sorp vandlega, halda nákvæma koltvísýringsreikninga. Hjóla allra sinna ferða – og vei þeim sem gleymir hjálminum!

Ég ætla alls ekki að halda því fram að þessar loftslagsbreytingar séu ekki raunveruleiki. Benti bara á að það eru til fleiri dæmi um slíkar dómsdagsspár – sem hafa ekki ræst. En því verður ekki neitað að heitasta plánetan er Venus – og þar er andrúmsloftið aðallega koltvísýringur.

Líklega þarf mannkynið að breyta lífsháttum sínum. Og þá er ekki bara spurning um bíla,flugvélar eða verksmiðjur. Í ágætri grein sem ég las kemur fram að einn mesti skaðvaldurinn er landbúnaðurinn. Ástæður fyrir þessu eru ýmsar, miklir flutningar á matvælum, mikil olíunotkun skógar sem eru ruddir til að skapa beitarhaga og akra til að fæða dýrin- og svo ekki síst allar skepnurnar sem eru síprumpandi og skítandi.

— — —-

Annars talaði ég um samgönguáætlun fremst í greininni. Ef ríkisstjórn Íslands ætlar að hafa stefnu í loftslagsmálum – þarf þá ekki samgönguáætlunin að taka mið af því? Einhvern veginn finnst manni að þetta hljóti að tengjast. Og kannski sauðfjárræktarsamningurinn líka?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Helen skrifar: Uppreisnarhaf íslenskunnar

Helen skrifar: Uppreisnarhaf íslenskunnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“