fbpx
Laugardagur 20.júlí 2024
Eyjan

Kosningatrix, samgöngumiðstöð, Bjargsmálið, Latino-Nordics

Egill Helgason
Þriðjudaginn 13. febrúar 2007 12:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Er eitthvað að marka samgönguáætlun sem Sturla Böðvarsson lagði fram í gær? Það er allsendis óvíst að Sturla sitji í næstu ríkisstjórn – dagar hans sem ráðherra eru líklega taldir. Ríkisstjórnin er líka þekkt fyrir annað en að fara eftir svona áætlunum. Í raun er ekki hægt að segja annað en að þetta sé hugarburður – kosningatrix sem best er að láta sem vind um eyru þjóta.

Þætti eðlilegt að forstjóri í fyrirtæki setti fram áætlun af þessu tagi fáeinum vikum áður en hann lætur af störfum? Þarf að spyrja?

Ef ráðherra vill setja svona fram rétt fyrir kosningar á hann auðvitað að gera það á eigin vegum – best er kannski er að hann komi því inn í kosningastefnuskrá flokks síns. Þetta á líka við um ýmislegt annað sem ráðherrar eru að setja fram þessa dagana – til dæmis meinta þjóðarsátt um orkunýtingu sem Jón Sigurðsson og Jónína Bjartmarz hafa kynnt.

— — —

Af sama tagi er viljayfirlýsing sem Sturla Böðvarsson undirritaði um daginn um samgöngumiðstöð í Vatnsmýrinni. Nú er staðan sú að framtíð þessa svæðis er alls óráðin. Ég man ekki betur en að öll framboðin sem buðu fram í borgarstjórnarkosningunum – að undanskildum Frjálslyndum – hafi lýst því yfir að flugvöllurinn ætti að hverfa úr Vatnsmýri. Enn skilst mér að standi fyrir dyrum samkeppni um skipulag Vatnsmýrarinnar.

Meðan er vaðið fram af ótrúlegri skammsýni í Vatnsmýrinni. Alls staðar er verið að búta hana niður. Ný bensínstöð er tákn um háðungina sem er sex akgreina hraðbraut í jaðri Hljómskálagarðsins. Samfylkingin tapaði miklu fylgi á þessari framkvæmd í borgarstjórnarkosningunum. Það var mátulegt á hana. Stórhýsi Háskólans í Reykjavík á að rísa úti í Nauthólsvík með tilheyrandi flæmi bílastæða. Að ógleymdum spítalanum mikla sem mun teygja sig ofan af Skólavörðuholti og niður í Vatnsmýri.

Samgöngumiðstöðin liggur líka einstaklega illa við öðrum samgöngum í bænum. Að hafa miðstöð fyrir rútubíla og strætisvagna svona langt frá meginbyggðinni er út í hött. Skipulagslega er það tóm della. Enda er tilgangur samgöngumiðstöðvarinnar ekki annar en að festa flugvöllinn í sessi.

— — —

Margt er að rifjast upp fyrir fólki þessa dagana. Eftir hinar hrikalegu afhjúpanir um Breiðavíkurheimilið hefur Bjargsmálið verið nokkuð til umræðu, bæði í DV og svo á bloggsíðu hins veðurglögga rithöfundar Sigurðar Þórs Guðjónssonar. Sigurður vill að Bjarg verði rannsakað ekki síður en Breiðavík.

Ekki minni maður en Matthías Johannessen skrifaði á sínum tíma leikrit sem byggðist á Bjargsmálinu. Það hét Fjaðrafok, var sýnt í Þjóðleikhúsinu, olli deilum, en fékk ekki mikla aðsókn. Mörgum árum síðar varð leikritið svo kveikjan að sjónvarpsmynd eftir Kristínu Jóhannesdóttur. Hún nefndist Glerbrot en aðalhlutverkið lék sjálf Björk Guðmundsdóttir.

— — —

Nú skilur maður Íslendinga betur – loksins. Glöggt er gests augað. Það er fagnaðarefni þegar hingað koma útlendingar og færa okkur heim ný sannindi um land og þjóð. Úr þeim hópi er Simon Anholt, frægur markaðsfræðingur, sem hefur komist að þeirri niðurstöðu að við séum latino-nordics.

Eða eins og haft var eftir Símoni í einu dagblaðanna:

"Simon Anholt hefur hins vegar mikla trú á getu Íslands til að skara frammúr nú á tímum alþjóðvæðingar. Hann kallar Íslendinga „Latino-Nordics" og lýsir þjóðinni sem einkennilegri blöndu af norrænni virðingu fyrir skilvirkni, sanngirni og hæfni í bland við miðjarðarhafseldmóð og hlýju."

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Rashford missir prófið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Helen skrifar: Uppreisnarhaf íslenskunnar

Helen skrifar: Uppreisnarhaf íslenskunnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“