fbpx
Laugardagur 20.júlí 2024
Eyjan

Bankauppreisn, öskudagur, dýr íbúðarlán, Eyðimörk

Egill Helgason
Miðvikudaginn 21. febrúar 2007 20:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er víðar en á Íslandi að bankar eru umdeildir, gróði þeirra, græðgi og feikleg umsvif. Dagblaðið The Independent slær upp á forsíðu sinni uppreisn gegn bönkunum í Bretlandi og álögum þeirra á viðskiptavini. Fyrir nokkrum dögum skilaði einn stærsti banki Bretlands, Barkleys, mesta gróða í sögu breskra fjármálafyrirtækja – 7 billjónum punda.

Í dag gerist það hér heima að Alþýðusamband Íslands gagnrýnir laun bankastjórnenda hjá Glitni. Í árskýrslu bankans kemur fram að laun sex stjórnenda hjá bankanum hafi hækkað milli ára úr 224 milljónum í 460 milljónir. Laun Bjarna Ármannssonar, forstjóra bankans, hækkuðu úr 80 milljónum í 140 milljónir.

Bankarnir eru orðinir ríki í ríkinu. Starfsemi þeirra teygir sig út í alla anga þjóðfélagsins, inn á hvert heimili og fyrirtæki. Þeir geta nánast skammtað sér tekjur. Hlutur bankanna í úrvalsvísitölunni er um 75 prósent. Þessi ofvöxtur hefur gerst á fáum árum – og getur alls ekki talist eðlilegur.

— — —

Ég fór í eitt útibúa Glitnis í dag. Þar er indælt starfsfólk og fín þjónusta. Ég er viss um að þessir starfsmenn eru ekki ofsælir af laununum sínum. Þeir eru ekki fat cats. Það var öskudagur. Hópar af börnum hröktust um bæinn í rokinu leit að sælgæti. En í Glitni höfðu þeir tekið upp á því að bjóða börnunum epli.

Það mæltist misjafnlega vel fyrir. Mér skilst að eitt barnið hafi sagt:

"Eruð þið ekki búin að græða nógu mikið til að geta gefið okkur sælgæti?"

— — —

Sá glöggi blaðamaður Páll Vilhjálmsson er með ágætt innlegg í umræðuna um bankaokrið á vef sínum. Páll skrifar undir yfirskriftinni Meira en 300 prósenta munur á vöxtum íbúðarlána í Noregi og á Íslandi. Þarna segir:

"Íbúðarlán íslensku bankanna eru 4,95 – 5 prósent og eru verðtryggð. Norskir bankar bjóða íbúðarlán á bilinu 3,38 – 3,52 prósent og þar er engin verðtrygging. Að frádeginni verðbólgu, sem var 2,2 prósent í Noregi í fyrra, bera lánin innan við 1,5 prósent raunvexti.

Norskir bankar geta stundað viðskipti með 1,5 prósent raunvexti en íslensku bankarnir þurfa 4,95 – 5 prósent raunvexti til að sinna sömu þjónustu. Sagt með örðum orðum: Það er meira en 300 prósent munur á vöxtum á íbúðarlánum hér á landi og í Noregi.

Maður hrekkur í kút af minna tilefni.

Sjá hér umfjöllun um húsnæðislán norskra banka.

Sjá hér verðbólgutölur í Noregi.

Sjá hér…nei, ég er ekkert að gefa upp vefslóðina hjá ræningjunum, þið kunnið þær."

— — —

Kári fór í Heiðmörk um helgina. Bara að ganga sér til heilsubótar með frænku sinni. Er ekki í frásögur færandi nema að barnið virtist ekki geta lært að kalla þetta Heiðmörk. Kallaði það alltaf Eyðimörk.

Ég átta mig ekki á því hvort hann þekkir eitthvað til Gunnars Birgissonar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Iðjulaus Brynjar fer í búðina oft á dag – Þetta er ástæðan

Iðjulaus Brynjar fer í búðina oft á dag – Þetta er ástæðan
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Gott að vita að stóru málin eru í lagi – lofsverð framsýni utanríkisráðherra

Svarthöfði skrifar: Gott að vita að stóru málin eru í lagi – lofsverð framsýni utanríkisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“