fbpx
Laugardagur 20.júlí 2024
Eyjan

Aftur í Rómarkirkjuna, ógeðsleg verksmiðja, fjölmiðlamóðganir

Egill Helgason
Sunnudaginn 4. mars 2007 17:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Séra Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Þorlákshöfn (og hinni frægu Strandarkirkju), var í skemmtilegu viðtali í Silfrinu í dag. Baldur setur fram róttæka hugmynd – að íslenska kirkjan sameinist aftur kaþólsku kirkjunni í Róm. Margir verða sjálfsagt hissa. En er kannski kominn tími til að setja niður aldagamlar deilur – frá tíma keisara, kónga og fursta? Að sumu leyti hefur kaþólska kirkjan líka gengið í gegnum þá siðbót sem Lúther krafðist.

Helst er kannski úr vöndu að ráða í siðferðisefnum – hvað varðar vígslu kvenpresta, skírlífi og hugsanlega afstöðu til samkynhneigðra. Á móti kemur að kirkjan á auðvitað að vera ein og heil, að kaþólsku fólki fer mjög fjölgandi í ríkjum mótmælenda – að því ógleymdu hvað helgisiðir, kirkjur, dýrlingar og Maríudýrkun í kaþólsku eru miklu meira heillandi en berir veggir og depurð lúterskunnar.

Annars má betur fræðast um þessar pælingar Baldurs á bloggsíðu hans. Mér finnst þetta allar athygli vert og vona að menn afgreiði það ekki bara með hneykslunarópum.

— — —

Það hefur aldrei þótt fínt á Íslandi að vera vondur við fólk, hvað þá að græða peninga á því að vera vondur við fólk. Íslendingar hafa sem betur fer lengstum verið nokkrir jafnræðissinnar í sér. Þess vegna finnst manni skrítið að lesa fréttir af verksmiðju Bakkavarar, Katsouris Fresh Foods, á Englandi. Lýsingarnar eru eins og eitthvað frá tíma iðnbyltingarinnar. Starfsfólk missir útlimi í vélum. Óhreinlætið er slíkt að aðskotahlutir finnast í matvælunum – fyrir utan salmonellu. Starfsfólkið er flestallt útlendingar á sultarlaunum.

Þetta er varla útrásin sem Íslendingar eru stoltir af.

Blaðið hefur hérumbil eitt fjölmiðla á Íslandi verið að fjalla um þetta. Er ekki kominn tími til að aðrir fjölmiðlar taki við sér?

Í fréttatíma Stöðvar 2 var svo frétt um annaðfyrirtæki af svipuðum toga Það heitir Lauffell og gerir út á að níðast á erlendum verkamönnum. Svonalagað er þjóðarskömm og á ekki að líðast.

— — —

Meira um fjölmiðla. Ég er sammála Páli Vilhjálmssyni sem er andsnúinn því á bloggi sínu að blaðamenn bindist einhvers konar þagnarbandalagi – gagnrýni helst ekki störf annarra blaðamanna. Þvert á móti. Það eiga að vera lifandi skoðanaskipti milli fjölmiðlanna. Við sem störfum á fjölmiðlum erum ekki partur af einhvers konar gildi þar sem ekki má troða öðrum meðlimum um tær.

Víkverjapistill í vikunni var mjög heimskulegur. Þar var gerð iðrun og yfirbót yfir því að hallað hafði verið orði á tímaritið Króníkuna í annarri Víkverjagrein nokkrum dögum fyrr. Víkverji er semsagt farinn að rífast við sjálfan sig.

Eins og það er orðað á einni bloggsíðunni fellur Víkverjaskríbentinn nafnlausi beinlínis í duftið af samviskubiti. Ég tók eftir því að Víkverjinn skrifaði zetu. Það hlýtur að þrengja ögn hringinn um hinn raunverulega höfund.

— — —

Og um nýju fjölmiðlana. Ansi virðast þeir eiga erfitt uppdráttar. Það er mjög erfitt að nálgast DV. Menn gera sér núorðið ekki ferð út í sjoppu til að kaupa blað. Í raun fer fæst fólk út í búð nema tvisvar til þrisvar í viku – það er borin von að ætla að dreifa dagblaði með því að selja það einungis í stórmörkuðum og sjoppum.

Einu sinni voru notuð blaðsölubörn en þau heyra líklega sögunni til. Þýðir kannski ekki heldur að reyna það – allir eru á bílum. Ég fylgist vel með fjölmiðlum en hef ekki séð DV nema þrisvar síðan það fór að koma út sem dagblað á nýjan leik. Þetta er ekki að virka.

Viðskiptablaðið hefur því miður ekki bætt miklu við sig með því að fjölga útgáfudögunum – alveg óháð fordómum mínum gagnvart blöðum sem eru prentuð á bleikan pappír. Helgarblaðið er reyndar hnýsilegt – maður les alltaf það sem frjálshyggjumennirnir Ólafur Teitur og Andrés Magnússon skrifa. En efnistökin þyrftu kannski að vera fjölbreyttari.

Króníkuna sé ég ekki hreyfast. Samt er margt ágætlega gert í blaðinu og það hefur heldur farið batnandi. Samt er ekki talað um efni Króníkunnar eða vitnað í blaðið. Það er ekki nógu gott fyrir fréttatímarit. Ég held að aðstandendur blaðsins þurfi að hafa áhyggjur af því. Það vantar meiri slagkraft.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Rashford missir prófið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Helen skrifar: Uppreisnarhaf íslenskunnar

Helen skrifar: Uppreisnarhaf íslenskunnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“