Meðal gesta í Silfri Egils á sunnudaginn verða þær Mona Sahlin, formaður sænska jafnaðarmannaflokksins, og Helle Thorning-Schmidt, formaður sósíaldemókrata í Danmörku.
Landsfundir Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar standa yfir nú um helgina og þaðan koma í þáttinn formennirnir Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Á vettvangi dagsins situr valinkunnt sómafólk, nefna má Pétur Tyrfingsson, Margréti Sverrisdóttur, Óla Björn Kárason og Björgvin Val Guðmundsson, ritstjóra og höfund Bæjarslúðursins á Stöðvarfirði.
Þess má geta að nú í miðjum apríl eru liðin átta ár síðan Silfur Egils fór fyrst í loftið. Ég er löngu búinn að missa tölu á því hvað þættirnir eru orðnir margir…