fbpx
Fimmtudagur 28.nóvember 2024
Eyjan

Rétt að fylgjast með Íslandi – vegna lýðræðisumbóta

Egill Helgason
Mánudaginn 31. desember 2012 15:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Guardian er Ísland nefnt sem eitt af löndunum sem rétt sé að fylgjast með á nýju ári. Það er þar í hópi Ítalíu, Þýskalands, Írans,  Bandaríkjanna, Kenýa, Írlands, Ísraels, Kína og Zimbawe.

Í mörgum þessara landa eru kosningar, eins og til dæmis í Ísrael, Þýskalandi og Ítalíu. Óvissa er um úrslit á Ítalíu, líklegt er að Angela Merkel haldi velli í Þýskalandi og eins Netanyahu í Ísrael.

Bandaríkjamenn álíta, samkvæmt skoðanakönnunum, að seinna tímabil Obamas forseta verði betra en hið fyrra. Og á Írlandi er í gangi nokkuð sérstætt plan sem felur í sér að laða til gamla landsins einhverja af hinum mikla fjölda fólks sem er af írskum ættum en býr annars staðar í heiminum.

Í greinarkorninu um Ísland er fjallað um Bjarta framtíð, Besta flokkinn og Jón Gnarr. Hvað sem öllum Kryddsíldum líður er Gnarr ein af þeim sögum sem útlendingum þykja merkilegastar frá Íslandi. Íbúatala Íslands er aðeins 320 þúsund, en þegar róttækar lýðræðisumbætur eru annars vegar er það landið sem horft er til, segir í Guardian.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Umpólun Snorra?

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar: Sjúkrahúsið Vogur og kosningar

Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar: Sjúkrahúsið Vogur og kosningar
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Hver er hinn verðandi dómsmálaráðherra Trump?

Hver er hinn verðandi dómsmálaráðherra Trump?