Ég hef áður skrifað hversu sorglegt umhverfið er við höfnina og í kringum Hörpu. Stórt flæmi bílastæða og stór umferðargata. Menn hljóta að stefna að því að reyna að tengja betur miðborgina og höfnina – sem er helsta prýði Reykjavíkur.
Hér er ágætt myndband frá Samtökum kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg þar sem er hvatt til þess að byggður sé viðlegukantur fyrir skemmtiferðaskip við gömlu höfnina. Þannig mundi hinn mikli fjöldi ferðamanna sem koma með slíkum skipum eiga greiða leið inn í borgina – og auðvitað spilar það inn í að þessir ferðamenn hafa oft rúm fjárrráð.
Þarna er komið inn á annað mál sem er líka áhugavert – að koma upp sumardagskrá í Hörpu sem höfðar til þess mikla fjölda ferðamanna sem hingað koma. Þetta gæti eflt hinn viðkvæma rekstrargrundvöll hússins. Þegar ferðamennirnir eru orðnir meira en tvöföld íbúatala Íslands hlýtur að vera eftir talsverðu að slægjast í þessu efni.