Gunnar Þ. Anderson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, verður gestur í Silfri Egils þennan sunnudag.
Af öðrum gestum í þættinum má nefna Silju Báru Ómarsdóttur, Magnús Svein Helgason, Guðmund Steingrímsson, Lýð Árnason, Ölmu Jennýu Guðmundsdóttur og Guðmund Franklín Jónsson.
Og meðal umræðuefna eru fréttir vikunnar hér á Íslandi – og forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á þriðjudag.