Í Silfrinu á sunnudag verða kosningarnar daginn áður gerðar upp. Fréttastofa RÚV verður með fremst í þættinum og fer yfir úrslitin.
Meðal þeirra sem hafa boðað komu sína í umræður eru Jóhanna Sigurðardóttir, Bjarni Benediktsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Þór Saari, enn er ekki útséð hver verður fulltrúi Vinstri grænna.
Í þættinum verður einnig rætt við fólk sem hefur beitt sér í kosningunum, með og á móti – og væntanlega einhverja stjórnmálaskýrendur.
Og eins og áður er komið fram verður Eva Joly í viðtali í þættinum.