Hér er mynd af snilldarsíðunni 101Reykjavík.
Myndin er tekin stuttu fyrir aldamótin 1900. Við sjáum dreng, klyfjahest og konu á leiðinni yfir brú sem lá yfir gamla Lækinn.
Lækurinn er þarna ennþá – undir Lækjargötunni.
Ég hef margoft nefnt þá hugmynd að opna hann aftur. Fólk dregst að rennandi vatni. Hann væri frábært kennileiti fyrir borgina.