Viðbrögðin í heimi íslams við kvikmyndinni bera vott um fáfræði, heimsku, kraumandi ofbeldishneigð – og svo eru væntanlega á bak við kaldrifjaðir menn sem vilja magna upp hatur og ófrið.
Móðgunargirninni er náttúrlega við brugðið.
Það vissi enginn af þessari mynd fyrr en einhver tók sig til og setti hana á YouTube. Hún hafði ekki verði sýnd á neinum áberandi stað, henni hafði ekki verið hampað, hérumbil enginn hafði séð hana. Áhuginn var núll.
Leikstjórinn er „virtur“ listamaður sem áður hefur leikstýrt myndum eins og The Happy Hooker Goes To Hollywood. Hann er svo vitlaus að hann segist ekki hafa vitað að þetta væri áróðursmynd gegn íslam.
En það þýðir líklega ekki að skýra þetta út – né heldur það að á Vesturlöndum eru menn frjálsir til að gera svona verk og ríkisvaldið getur ekki gripið inn í – og á helst ekki að gera það.
Það má vera að þetta sé erfitt að skilja fyrir illa upplýst fólk í löndum þar sem ríkir ströng ritskoðun og ekkert birtist nema með samþykki klerka eða ríkisvalds.
En það breytir því ekki að þetta eru gráthlægilegustu mótmæli sem maður hefur séð – og var það nú slæmt þegar þeir hömuðust gegn dönsku teiknimyndunum.