Hún er merkileg niðurstaða alþjóðlegrar Gallupkönnunar sem Rúv greinir frá – þar segir að 98 prósent Íslendinga myndu kjósa Barack Obama ef þeir væru kjósendur í Bandaríkjunum.
Þetta er hæsta hlutfall í heiminum, en aðeins í Ísrael er Mitt Romney í meirihluta. Hernaðarbrjálæðingarnir þar vonast til þess að hann standi við loforð um að hefja hernað gegn Íran.
En hvað varðar Ísland þá sýnir þetta að það er lítt vænlegt til árangurs að nugga sér upp við Romney eða Repúblikana.