Nær algjör styrjöld virðist vera brostin á milli fylkinga í Vinstri grænum.
Úlfar Þormóðsson rithöfundur skrifar lítinn pistil á Smuguna þar sem hann gerir að umtalsefni Facebook-síðu sem birtist undir nafninu Arna Mosdal.
Þar er að finna alls kyns illmælgi um Steingrím J. Sigfússon, Björn Val Gíslason og Árna Þór Sigurðsson og annað forystufólk í Steingrímsarmi VG. Það má eiginlega segja að allir sem halla máli á Ögmund Jónasson séu teknir til bæna.
Og ávallt er tekinn málstaður Ögmundar – af mikilli hörku.
Úlfar skrifar:
„Einn kjarklaus tignarkarl hefur gengið svo langt að skipta um kyn til þess að geta ausið úr sér lágkúrunni. Hann felur sig á bak við konu sem ekki er til. Reyndar virðist hann líka hleypt öðrum undir pilsin hjá henni, mönnum með sömu lyndiseinkunn. Saman, og hver í sínu lagi, heita þeir Arna Mosdal og hreyta fúkyrðum í fólk sem skrifar á netið um það sem þeim er andstætt. Tilgangurinn er augljós: Að fæla fólk frá því að taka þátt í umræðu um mál sem þeir vilja að liggi í þagnargildi.“
Hann bætir svo við að brátt verði Arna Mosdal afhjúpuð – „stórmennið“ standi þá „nakið fyrir allra augum“.
Hér má sjá Facebook-síðu Örnu Mosdal. Hver skyldi það nú vera sem verður afhjúpaður – hvaða stórmenni er þetta?