Á Facebook er spurt hvar hann sé Indverjinn sem rauf sambandið á Stöð 2 í útsendingunni fyrsta daginn sem var sent út – hvar er hann nú þegar þörf er á honum? Vandræðalegri sjónvarpsþáttur hefur varla sést á Íslandi – og það er ljóst að Ari Trausti, Andrea og Hannes skoruðu fullt af stigum þegar kom á daginn hvert fyrirkomulag umræðunnar átti að vera.
Gagnvart þessu standa þáttastjórnendur auðvitað ráðalausir – þeim er máski vorkunn – en það er toppar svo allt að senda út Spaugstofuinnslög meðfram umræðunum.
En æ, þarna líkti Ólafur Ragnar sér við Elísabetu Englandsdrottningu! Þær eru svo skrítnar þessar kosningar að það er kannski hægt að tapa þeim á einhverju svona! Hún tollir þó betur á hestinum en hann.