fbpx
Föstudagur 18.apríl 2025
Eyjan

Hið dapra sígaunalíf

Egill Helgason
Þriðjudaginn 22. október 2013 19:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú eru farnar að berast fleiri fréttir af ljóshærðum börnum með Róma-fólki – þeim sem áður hétu sígaunar. Minnir dálítið á söguna um Bláskjá sem var enn lesin í mínu ungdæmi. Líklega þykir hún ekki boðleg í dag vegna rasisma.

Ég hef reyndar eitt sinn séð hóp sígauna með einkennilega ljóshært barn. Það var í Suður-Frakklandi fyrir svona áratug. Þar voru sígaunar á torgi með lítinn dreng sem var svo ljós að hann leit helst út fyrir að vera frá Finnlandi eða Svíþjóð. Svo hurfu þeir á brott og ég sá þá ekki meir.

Það sem er einna sorglegast við sígaunalífið er meðferðin á börnunum. Þau ganga ekki í skóla, læra vart að lesa, eru send út til að betla og snapa. Maður veit svo ekki hvert peningarnir fara – varla í að fæða þau og klæða. Í fyrra var ég úti á götu í borg í Grikklandi, þar var sígaunastúlka sem var nýbúin að fæða barn. Hún hafði einfaldlega fætt úti á götu. Í kringum stóð fólk sem var að reyna að telja hana á að fara á sjúkrastofnun til að fá aðhlynningu fyrir sig og barnið.

Sígaunar eru óvinsælir, sums staðar hundeltir og kúgaðir. Þeir standa sjálfir vörð um frelsi sitt og flökkulíf, og láta ekki yfirvöld segja sér, en það kann að vera dýrkeypt fyrir konur innan hópsins sem eru kúgaðar og beittar ofbeldi, stúlkur sem þurfa að gefast körlum á unga aldri og börn sem njóta ekki menntunar eða sæmilegs atlætis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Útgerðin fer þangað sem henni sýnist

Sigmundur Ernir skrifar: Útgerðin fer þangað sem henni sýnist
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðmundur Ingi Kristinsson: Samræmd próf eru tímaskekkja – fátækt má ekki hindra aðgang að námi

Guðmundur Ingi Kristinsson: Samræmd próf eru tímaskekkja – fátækt má ekki hindra aðgang að námi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Sjálfstæðisflokkurinn hleypur í skarð Pírata

Svarthöfði skrifar: Sjálfstæðisflokkurinn hleypur í skarð Pírata
Eyjan
Fyrir 1 viku

Varpar sprengju í nýrri bók – Obama vildi stöðva Kamala Harris

Varpar sprengju í nýrri bók – Obama vildi stöðva Kamala Harris
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja Solveig Kro, hagfræðingur hjá Arion banka: Við eigum ekki að framleiða bíla og avókadó á Íslandi

Lilja Solveig Kro, hagfræðingur hjá Arion banka: Við eigum ekki að framleiða bíla og avókadó á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Telur sægreifana ætla að ná yfirráðum yfir Stöð 2, Vísi og Bylgjunni

Telur sægreifana ætla að ná yfirráðum yfir Stöð 2, Vísi og Bylgjunni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Alþjóðaviðskipti ráða mestu um hag fólks

Sigmundur Ernir skrifar: Alþjóðaviðskipti ráða mestu um hag fólks
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja Solveig Kro, hagfræðingur hjá Arion banka: Ekki viss um að seðlabankar geti horft fram hjá verðhækkunum af völdum tolla

Lilja Solveig Kro, hagfræðingur hjá Arion banka: Ekki viss um að seðlabankar geti horft fram hjá verðhækkunum af völdum tolla