Verslanakeðjan HMV, eða His Master´s Voice, í Bretlandi er komin í gjaldþrotameðferð.
Merki þessa fyrirtækis, hundurinn og lúðrahátalarinn, er afar vel þekkt – það á uppruna sinn í árdaga plötuútgáfu, árið 1899. Fyrsta búðin undir þessu nafni opnaði 1921, á hátindinum 1996 voru 200 HMV verslanir í heiminum.
Á síðari árum hefur HMV aðallega selt hljóm- og mynddiska. Stærsta útibúið er í Oxfordstræti, mikil og glæsileg búð þar sem er hægt að týna sér tímunum saman.
Ekki er vitað hvað verður um búðirnar, en framtíðin er ekki björt. Sífellt stærri hluti viðskipta með kvikmyndir og tónlist fer fram á netinu. Búðir af þessu tagi hafa verið að gefast upp út um allan heim.
Þeir þykja sjálfsagt gamaldags sem vilja hafa áþreifanlega hluti í höndunum – eins og diska eða plötur í umslögum, með tilheyrandi hönnun og texta. En það verður bara að segjast eins og er, miðað við að fara út í búð, gramsa og skoða og velja innan um annað fólk, þá er hundleiðinlegt að hlaða niður af netinu.