fbpx
Miðvikudagur 02.apríl 2025

Þórarinn á forvitnilegustu kynlífslýsingu ársins 2017: „Við rasskinnarnar loddu eistu sem hreyfðust nær og fjær..“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 16. apríl 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórarinn Leifsson hlaut Rauðu hrafnsfjöðrina, verðlaun fyrir forvitnilegustu kynlífslýsingu ársins 2017, á aðalfundi lestrarfélagsins Krumma síðastliðinn föstudag. Verðlaunalýsingin birtist í skáldsögu Þórarins Kaldakoli, sem kom út á síðasta ári.

Þetta var í tólfta sinn sem Rauða hrafnsfjöðrin er veitt, en meðal vinningshafa fyrri ára eru Sigurbjörg Þrastardóttir, Bergsveinn Birgisson, Elísabet Jökulsdóttir, Megas, Auður Ava Ólafsdóttir og Sjón.

Pétur Blöndal, forseti Lestrarfélagins Krumma, afhendir Þórarni Leifssyni Rauðu hrafnsfjöðrina.

Verðlaunalýsing Þórarins var svohljóðandi:

„Þá sá hann tvo hvíta belgi sem hann hélt fyrst að væru litlir feitir englar úr Rubens-málverki, en þegar betur var að gáð reyndust þetta vera rasskinnar konu, óvenju stórar því þær flöttust út á glerinu eins og risastórar hvítar pönnukökur. Við rasskinnarnar loddu eistu sem hreyfðust nær og fjær eins og pendúlar fastir við loðna fótleggi, hálfklædda í jakkafatabuxur og karlmannsskó en þrengdu sér núna á milli snjóhvítra læra og leggja í leðurstígvélum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Fordæma seinagang mennta- og barnamálaráðuneytisins

Fordæma seinagang mennta- og barnamálaráðuneytisins
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Bað menn um að „fela typpið“ þegar Michael Jackson kom í heimsókn

Bað menn um að „fela typpið“ þegar Michael Jackson kom í heimsókn
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Næsta stóra kynlífsáskorun Bonnie Blue – Er þetta líkamlega hægt?

Næsta stóra kynlífsáskorun Bonnie Blue – Er þetta líkamlega hægt?
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Sláandi tölfræði fær stuðningsmenn United til að tala

Sláandi tölfræði fær stuðningsmenn United til að tala
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Páll telur að enn eigi mikið eftir að gerast

Páll telur að enn eigi mikið eftir að gerast
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Evrópskir hermenn eiga að tryggja að Rússar ráðist ekki á ný á Úkraínu

Evrópskir hermenn eiga að tryggja að Rússar ráðist ekki á ný á Úkraínu
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum
Val Kilmer er látinn