Kemur í ljós að hafa verið gerð alls konar mistök í samræmdum prófum. Spurningar voru vitlausar, eitt samræmda prófið var svo þungt að nemendur höfðu á tilfinninguna að væri verið að brjóta sig niður.
Samræmd próf eru tekin í fjórða bekk, sjöunda bekk og tíunda bekk.
Sonur minn sem er í sjöunda bekk hefur tvívegis tekið þessi próf. Síðast var það í september, í upphafi skólaárs. Þegar strákurinn var í fjórða bekk voru sumir nemendur í skólanum teknir til hliðar og látir baka kökur.
Við höfum upplifað algjört tilgangsleysi samræmdu prófanna. Börnin hafa ekkert nema ama að þeim. Einkunnirnar komu núna í nóvember og við nenntum varla að kíkja á þær.
Því það er alveg ljóst að þessi próf eru ekki fyrir börnin, ef svo væri hefðu menn ekki þennan hátt á, heldur fyrir byrókrata til að geta reiknað í kúrfur.
Þetta er kerfi sem hlýtur að mega endurskoða. Og nú tek ég fram að drengurinn er í skóla þar sem er heilmikið af prófum. Þau eru hins vegar í takt við skólaárið og námsframvinduna.