Einhvern veginn kemur upp í hugann orðið „væntingastjórnun“ í sambandi við það tímabil sem nú stendur yfir í stjórnarmyndunarviðræðunum.
Ég veit ekki hvort þetta er almennt notað.
En þetta er nákvæmlega það sem er að gerast núna – það er verið að reyna að stýra væntingum fólks til nýrrar ríkisstjórnar, gíra þær niður.
Það kemur svo í ljós hvernig til tekst, en þetta er heilmikið starf fyrir ímyndarsmiði.
Sporin hræða, enda má segja að „væntingastjórnun“ síðustu ríkisstjórnar hafi gjörsamlega mistekist.