Það er algengt í stjórnmálum á Íslandi að menn séu annað hvort alveg vondir eða alveg góðir. Hlutirnir eru annað hvort svartir eða hvítir.
Hanna Birna Kristjánsdóttir segir af sér ráðherraembætti. Yfirlýsingin sem hún gefur vegna afsagnarinnar er ekki góð, hún reynir enn að kenna öðrum um. Staðreyndin er sú að hún getur aðallega kennt sjálfri sér um og dómgreindarbresti sínum í máli sem hefði aldrei þurft að verða neitt neitt.
En það er ekki þar með sagt að Hanna Birna sé alslæm sem stjórnmálamaður.
Gísli Marteinn Baldursson vekur athygli á því að Hanna Birna hafi verið góður „bandamaður Reykjavíkur í ráðherrastóli“.
Vegna þessa dynja skammir yfir Gísla – hlutirnir eru annað hvort alvondir eða algóðir. En þetta er hárrétt hjá Gísla. Hanna Birna hefur ekki ljáð máls á þeirri fásinnu sem komin er upp á Alþingi að taka skuli skipulagsvaldið af Reykjavík. Það verður forvitnilegt að sjá hvernig nýr innanríkisráðherra höndlar það.
Og svo eru það innflytjendamálin. Þar er ljóst að Hanna Birna vildi gera betur en forveri hennar, Ögmundur Jónasson. Ögmundur kemur úr flokki sem þykist vera mjög vinveittur innflytjendum. Samt er staðreyndin að á ráðherraferli Ögmundar varð afar lítið úr umbótum í málefnum innflytjenda og hælisleitenda.
Hanna Birna skipaði hins vegar nefnd til að vinna úr umbótum í útlendingamálum. Formaður nefndarinnar er stjórnarandstæðingur, Óttarr Proppé úr úr Bjartri framtíð. Svandís Svavarsdóttir situr líka í nefndinni, Össur Skarphéðinsson, Birgitta Jónsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir og Unnur Brá Konráðsdóttir. Frumvarp frá nefndinni á að koma fram í vetur.
Ráðuneytið gaf líka út reglugerð um flýtimeðferð hælisumsókna nú í haust, það markmið hefur líka verið sett að stytta málsmeðferðartíma í hælisleitendamálum í 90 daga. Valinkunnur sómamaður, Hjörtur Bragi Sverrisson, fyrrverandi yfirmaður mannréttindamála hjá ÖSE í Kosovo, hefur verið skipaður nýrrar kærunefndar útlendingamála frá 1. janúar næstkomandi.
Nú eru sjálfsagt einhverjir sem munu upplifa reiðitilfinnngu þegar þeir lesa þessa grein. En þarna er ráðherra sem er að reyna að standa sig í stykkinu. Þeim mun sorglegra er að Hanna Birna skuli falla með þessum hætti – og varla sjá neitt athugavert við framgöngu sína þegar hún hættir. Þar er hún á valdi þess sem Grikkir kölluðu hubris.
Annars er smá lærdómur þarna fyrir ráðherra, nokkuð praktískur: Ekki ráða töskubera og stólaraðara úr flokknum sem aðstoðarmenn. Ekki jámenn, skotgrafafólk, ekki heldur skoðanasystkin, heldur fólk sem getur lagt eitthvað gott af mörkum, fólk sem getur bætt ráðuneytið og hjálpað ráðherranum að komast lengra og hærra.