Hér er merkileg ljósmynd sem birtist á vef Ljósmyndasafns Reykjavíkur, er þar ljósmynd vikunnar.
Þarna má sjá Höfða og svæðið þar sem er nú Borgartún. Þetta er mestanpart óbyggt, en mesta athygli vekur að þarna stendur Höfði út við sjávarkambinn.
Húsið hefur færst innar í landið síðan þetta var, það eru komnar miklar uppfyllingar, þar sem er Sæbrautin. Fólk áttar sig almennt ekki á því hvað Reykjavík hefur stækkað mikið út í sjó.
Rétt utan myndrammans til hægri er Höfðaborgin, hún sést ekki – það var versta fátækrahverfi Reykjavíkur á þessum árum.
Myndin er tekin af Pétri Thomsen um 1955.