Við erum ekki svo einstök hér á Íslandi – og flest okkar mál eru þess eðlis að aðrar þjóðir hafa þurft að glíma við eitthvað svipað.
Oft er samt eins og við vitum ekki af því eða skiljum það ekki – það eru til hliðstæður erlendis sem varpa ljósi á mál eða jafnvel hjálpa okkur að komast til botns í þeim.
Nú er rætt um það framtak sjálfstæðismanna í kalda stríðinu að fylgjast með kommúnistum – njósnir myndu sumir kalla það, þótt skýrslurnar af fundum komma sem birtast í bók Styrmis Gunnarssonar séu frekar daufleg lesning.
Í Danmörku var í gangi svipuð starfsemi sem gæti jafnvel verið eins konar fyrirmynd þess sem Eykon og Styrmir voru að bauka hér á Íslandi. Hún gekk undir því dularfulla heiti Firmaet eða barasta Fyrirtækið. Firmaet var líka kallað Blikkenslagerbanden – já, þetta er eins og úr kvikmynd.
Fyrirtækið starfaði frá 1948 til 1963. Þetta var einstaklingsframtak, en leyniþræðirnir náðu inn í stjórnmálalífið. Gögnum sem Fyrirtækið safnaði var dreift til stjórnmálamanna, meðal annars til forsætisráðherrans Eriks Eriksen og Hans Hedtofts, sá fyrrnefndi var íhaldsmaður en sá síðarnefndi sósíaldemókrati.
Hinn mikli fjandskapur sem var milli jafnaðarmanna og kommúnista vill stundum gleymast. Hann má lesa á síðum Alþýðublaðsins á tíma kalda stríðsins.
Einar Gerhardsen, jafnaðarmaðurinn sem var eins konar landsfaðir í Noregi, sagði í frægri ræðu:
Det som kan true det norske folks frihet og demokrati, det er den fare som Det norske kommunistparti til enhver tid representerer. Den viktigste oppgaven i kampen for Norges selvstendighet, for demokrati og rettsikkerheten, er å redusere Kommunistpartiets og kommunistenes innflytelse mest mulig. … De som står i spissen for kommunistpartiet i Norge, er Komintern- og Kominform-kommunister. Som sine kampfeller i andre land er de i sine hjerter tilhengere av terror og diktatur.
Kommúnistarnir aðhyllast ógn og harðstjórn, sagði Gerhardsen.
Firmaet í Danmörku hafði líka samband við CIA og við leyniþjónustu danska hersins. Þarna kemur líka við sögu félagsskapur sem nefnist Arbejderbevægelsens Informations Central eða upplýsingaþjónusta verkalýðshreyfingarinnar. Hún starfaði á vegum flokks jafnaðarmanna og verkalýðshreyfingarinnar og hafði eftirlit með kommúnistum.