fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Eyjan

Einar Ben sem svipa á málleysingja

Egill Helgason
Þriðjudaginn 18. nóvember 2014 16:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir stuttu var með pompi og prakt haldið upp á að 150 ár eru liðin frá fæðingu Einars Benediktssonar. Meira að segja var fundið upp á því að gera daginn að „Degi ljóðsins“.

Ýmislegt var rætt á þessum tímamótum – menn fóru meira að segja að velta fyrir sér hvort Einar hefði verið gott skáld. Meðal þeirra sem lögðu orð í belg voru skáldkonan Kristín Svava Tómasdóttir. Kristín sagðist ekki vera sérlega hrifin af skáldskap Einars:

Ég hef aldrei lagt mig sérstaklega eftir ljóðlist Einars Benediktssonar og fundist hann frekar uppskrúfaður og leiðinlegur þar sem ég hef rekist á hann. Það er auðvitað bara smekksatriði, og ekki Einari að kenna að það sé svona eilíflega hamrað á þessum sjálfshjálparlegu línum úr Einræðum Starkaðar um brosið og aðgátina. Kannski er hann fínn þegar maður þekkir hann. Ég efast heldur ekki um að skipuleggjendur afmælisins séu raunverulega hrifnir af skáldskap Einars og vilji veg hans sem mestan (ég leyfi mér meiri tortryggni gagnvart menntamálaráðherra, sem lagði ríka áherslu á athafnasemi Einars og stuðning hans við „öld orkuiðnaðar, viðskiptafrelsis og samkeppni“ í grein um skáldið í Morgunblaðinu síðasta föstudag, en af einhverjum dularfullum ástæðum hefur Mogginn fjallað blaða mest um afmælishátíðina).

 

kristinsvava

 

Í sömu grein, sem birtist á vefnum Druslubækur og doðrantar vitnaði Kristín í orð sem Arthúr Björgvin Bollason, skipuleggjandi Einarshátíðarinnar, lét falla í útvarpi á afmælisdeginum. Þar var bæði rætt um Dag ljóðsins og hugmyndir um að stofna Hús ljóðsins. Kristín hefur þetta eftir Arthúri:

Málið hlýtur að vera að reyna að draga þessa krakka, þessa unglinga, svolítið út úr þessum digital heimi sínum og koma þeim í kynni til dæmis við það mál sem talað var í landinu fyrir svona 30-40 árum, það sem við köllum íslensku, og þar er Einar náttúrulega alveg rosalega fín svipa á þessa ákveðnu málleysingja sem eru að verða til í okkar samfélagi. … Við þekkjum það sem eigum unglinga að þetta er ofboðsleg rýrnun málnotkunar þegar krakkarnir hanga á þessum samskiptamiðlum öllum stundum. Þetta er mjög takmarkaður orðaforði, þau kynnast ekkert nema bara orðum hvers annars og lesa ekki bækur, lesa ekki höfunda, lesa ekki eldri höfunda, lesa ekki, kannski ekki rithöfunda yfirleitt, eða almennilegar bækur, og sjá voða lítið af íslenskunni. Þannig að eins og þú heyrir þá er það draumurinn að nota Einar ekki bara sem, heldur sem málræktarátak hreinlega, ef að þessi hugmynd verður að veruleika.

Kristín Svava segir að hún hafi farið í bræðiskast þegar hún heyrði þetta, og verið skapi næst að henda kaffibolla í útvarpið. Hún skrifar:

(Það er óljóst hvers vegna Arthúr Björgvin telur að Einar Ben (1864-1940) veiti góða leiðsögn um það mál sem talað var á Íslandi fyrir 30-40 árum síðan (1974-1984), né af hverju það tímabil er sérstaklega eftirsóknarvert sem málræktarleg fyrirmynd – ég hlustaði á þetta þrisvar en held mér hafi örugglega ekki misheyrst. Nærtækasta kenningin er auðvitað sú að Arthúr Björgvin var sjálfur ungur maður fyrir 30-40 árum og síðan hefur ekki verið töluð íslenska í landinu.)

Semsagt: íslenskir unglingar eru í rauninni móðurmálslausir, en babbla eitthvað sín á milli á samskiptamiðlunum. Til þess að snúa við þeirri ógæfulegu þróun er best að láta unglingana lesa EINAR BEN. Í viðtalinu kom raunar einnig fram að með þessu verði unglingarnir ekki einungis kynntir fyrir alvöru íslensku heldur verði einnig stuðlað að varðveislu menningararfsins – Einar er greinilega til margra hluta nytsamlegur.

Ekki veit ég hver mun þjást mest í þessu samhengi, unglingarnir, Einar eða ljóðlistin.

 

images

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ráðamenn sem hossa sjálfum sér

Björn Jón skrifar: Ráðamenn sem hossa sjálfum sér
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sakar Reykjavíkurborg um að draga lappirnar varðandi viðbrögð við rafhjólaslysum

Sakar Reykjavíkurborg um að draga lappirnar varðandi viðbrögð við rafhjólaslysum