fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Eyjan

Davíð, Bryndís og Framsókn á móti – hvað verður um matarskattshækkunina?

Egill Helgason
Laugardaginn 15. nóvember 2014 15:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bryndís Loftsdóttir varaþingmaður fær aldeilis liðsmann í báráttunni gegn hækkun matarskatts í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins í dag.

Sjálfur Davíð Oddsson kallar hækkunina „rugl“ og segir að mótvægisaðgerðirnar séu „dularfullar“.

Bryndís mátti sitja undir ásökunum um að vera óflokksholl – Brynjar Níelsson spurði fyrir mánuði síðan hvort hún ætti ekki að skipta um og fara í annað lið.

Margir þingmenn Framsóknarflokksins hafa stigið fram og mótmælt hækkun matarskattsins – svo mjög að spurning er hvort meirihluti er fyrir þessari ráðstöfun á þingi. Davíð Oddsson hefur verið býsna hallur undir Framsókn í seinni tíð – þarna fá framsóknarþingmennirnir vissulega stuðning.

En þá er spurning hvað hefur farið á milli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar. Bjarni getur trauðla bakkað með matarskattshækkunina, hann hefur lagt of mikið undir til þess. Fjárlög þarf að samþykkja fyrir þinghlé í desember.

Skuldaniðurfærslan sem var tilkynnt á mánudaginn var aðeins ríflegri en búist var við. Er hugsanlegt að á móti hafi Framsókn gengist undir matarskattshækkunina?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur