Fjölmiðlar fá ekki að tala við neinn hjá innanríkisráðuneytinu nema upplýsingafulltrúann – og hann er í fríi fram á þriðjudag.
Eitt hef ég lært á nokkuð löngum blaðamannsferli – maður á helst aldrei að tala við upplýsingafulltrúa.
Það er nánast skylda blaðamanna að komast framhjá upplýsingafulltrúunum eða blaðafulltrúum, eins og það hét áður fyrr.
Hlutverk þeirra er yfirleitt ekki að upplýsa, heldur fremur að fela eða standa vörð.