Sumar fréttir eru spaugilegri en aðrar – og ekki síst ef þær afhjúpa furðulegan hugsunarhátt.
Framkvæmdastjóri Strætó bbþ lætur fyrirtækið – sem er í opinberri eigu – kaupa fyrir sig Mercedez Benz bifreið sem kostar 10 milljónir króna.
Hann telur að þetta sé hluti af ráðningarkjörum sínum. Þetta sé samningsbundið.
Stjórn Strætó bs. ákveður að láta manninn skila bílnum.
En eina vitið er auðvitað að láta framkvæmdastjóra Strætó bs. ferðast með strætó, eins og fólkið sem hann er að vinna fyrir. Það gefur auga leið.
Alla jafna myndi maður frekar vilja ferðast í svona Benz-bifreið en í strætisvagni. Það vildi Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., líka gera.