Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Lisa Murkowski er ein aðalsprautan bak við Arctic Circle ráðstefnuna sem farið er að halda árlega á Íslandi.
Murkowski er frá Alaska og hún er það sem kallast big oil, gætir hagsmuna olíurisa. En hún er líka nýr formaður orkumálanefndar Bandaríkjaþings.
Murkowski flutti ræðu við setningu Arctic Circle í Hörpu fyrir nokkrum dögum.
Svo fór hún til síns heima, fagnaði sigri Repúblikana í þingkosningum, hélt ræðu við það tilefni og sagði að eldgosið í Holuhrauni á Íslandi mengaði meira en allir bílar og verksmiðjur Evrópu næstu þúsund árin.
Ekki er vitað nákvæmlega hvaðan konan hefur þetta rakalausa bull, en líklega hefur hún heyrt það á Íslandi. Vanþekkingin er æpandi fyrir manneskju í svo hárri stöðu – og hugsanlega hættuleg.
Murkowski er í stjórn Arctic Circle ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, pútínistanum Artur Chilingarov – þeim sem setti rússneska fánann á Norðurpólinn – og þar eru líka grænlenski stjórnmálamaðurinn Kuupik Kleist og Ahmed Al Jaber, ráðherra frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum.