Steinunn Sigurðardóttir er gestur í Kiljunni í kvöld og segir frá nýrri skáldsögu sem nefnist Gæðakonur. Þetta er sprellfjörug bók um heim þar sem karlar kunna að vera óþarfir.
Við hittum Kristínu Steinsdóttur við þvottalaugarnar, en bók hennar Vonarlandið gerist að hluta þar. Hún fjallar um fátækar ungar konur sem flytja til Reykjavíkur á seinni hluta nítjándu aldar til að freista gæfunnar.
Gagnrýnendur ræða um Öræfi eftir Ófeig Sigurðsson og Kamp Knox eftir Arnald Indriðason.
Í dagskrárliðnum Bókum og stöðum förum við á slóðir Hendriks Ottóssonar, höfundar bókanna um Gvend Jóns í Vesturbænum í Reykjavík.