Ný skoðanakönnun sýnir að fylgi við veru Bretlands í Evrópusambandinu hefur tekið óvænt stökk.
56 prósent Breta vilja vera áfram í ESB samkvæmt könnuninni, það er hæsta hlutfall síðan 1991.
Þetta eru merkileg tíðindi, og skýringin virðist helst vera ein – framsókn Ukip, flokksins sem er harðastur á móti aðildinni að ESB.
Foringi Ukip er Nigel Farage, hann gefur sig út fyrir að vera maður fólksins, drekkur bjór og reykir hvar sem hann fer – er líkastur náunga sem maður gæti hitt á krá og farið að tala við. Manni gæti líkað vel við hann fyrst – en eftir svolítinn tíma yrði maður þreyttur. Þetta er svolítið yfirdrifið hjá honum.
Í flokki Farage er svo alls konar fólk – margt af því er ekki síður á móti hjónaböndum samkynhneigðra og innflytjendum en ESB.
Farage tekur fylgi frá Íhaldsflokknum fyrst og fremst og David Cameron virkar logandi hræddur við hann.
En hjá öðrum er líkt og hann veki upp mótefni, hann hefur þveröfug áhrif við það sem ætlunin er – þeir sem horfa upp á framgöngu Ukip hneigjast fremur til að vera algjörlega á öndverðum meiði við Farage.
Og því vex stuðningurinn við ESB – það er að minnsta kosti ein stærsta skýringin. Kannski verður það Nigel Farage sem gulltryggir veru Breta í Evrópusambandinu?
Annað er reyndar að meðal þorra Breta þykir ESB ekkert stórmál. Skoðanakannanir sýna að þeir telja heilbrigðismál, innflytjendur, atvinnumál, laun og menntamál vera mikilvægari – í þessari röð. Svo kemur Evrópa, aðeins 7 prósent telja að það sé mikilvægasta málið. En meðan skoðanirnar eru ekki sterkari er auðveldara að hræra í þeim.
Nigel Farage, með bjórinn og sígarettuna. Hann er maður fólksins og ætlar ekki að láta neinn segja sér fyrir verkum.