Þessar dásamlegu ljósmyndir eru sýnishorn úr safni sem birtist á Facebook-síðunni Gamlar ljósmyndir.
Grétar Ívarsson jarðfræðingur sem setur myndirnar á vefinn skýrir tilurð þeirra út með þessum hætti:
Þessar myndir voru teknar 29. júlí 1960. Flestar eru þær frá Reykjavík en nokkrar eru frá Hafnarfirði. Hópur þýskra jarðfræðinga kom hérna á þessum tíma og fóru um allt land að skoða jarðfræði og einn þeirra tók þessar myndir. Ég komst yfir þær og tók afrit, en því miður hafði sveppur komist í filmurnar og eru þær orðnar nokkuð skemmdar. Sigurður Þórarinsson (gamli kennarinn minn úr jarðfræðinni í HÍ) var leiðsögumaður hópsins og bregður honum fyrir á nokkrum myndum.
Verið að leggja Lönguhlíðina meðfram Klambratúni. Takið eftir að ekki sjást tré í Öskjuhlíð, ólíkt því sem er nú.
Stýrimannaskólinn. Ein bifreið og kona með barnavagn.
Séð úr Hljómskálagarðinum yfir að Gamla Garði og Þjóðminjasafninu. Á fánunum sést hvernig veður hefur verið þennan júlídag, stríð og líklega köld norðanátt.