Maður finnur til algjörrar smæðar gagnvart óskiljanlega stórum alheimi þegar maður horfir á þetta myndband af YouTube.
Myndbandið byggir á ljósmyndum af Andrómeda stjörnuþokunni, næsta nágranna okkar í Vetrarbrautinni, sem eru teknar með Hubble-sjónaukanum. Þarna eru samsettar 411 ljósmyndir og upplausnin er 1,5 milljarðar pixla. Myndin var birt af NASA fyrr í mánuðinum.
Þarna sjáum við hluta af alheimnum þar sem eru 100 milljón stjörnur og við ferðumst aftur 40 þúsund ljósár.
En samt er þetta ekki nema brotabrot.