fbpx
Mánudagur 22.júlí 2024
Eyjan

Vinkona Ólafs Ragnars gegn orkustefnu Obamas

Egill Helgason
Föstudaginn 9. janúar 2015 11:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ari Trausti Guðmundsson skrifar sérlega tímabæra grein á vefinn Umhverfisfréttir – og er efni hennar rakið hér á Eyjunni.

Í greininni reynir Ari Trausti að slá aðeins á órana sem hafa einkennt umræðuna um norðurslóðir. Þar ræður því miður græðgin förinni. Ari Trausti varar við „of hástemmdum orðum um þýðingu norðursins“ og „ofleik einstaklinga“.

Forseti Íslands er einn af þeim sem hafa haft uppi hvað hástemmdastar lýsingar á norðrinu, framtíð þess og þýðingu fyrir heiminn. Semsagt því sem Ari geldur varhug við.

Forsetinn situr í stjórn félagsskapar sem nefnist Arctic Circle. Hann heldur reglulega ráðstefnur á Íslandi. Þar sitja með honum Artur Chillingarov, sérstakur vinur Pútíns, mikill áhugamaður um rússneska útþenslu. Hans hefur áður verið getið á þessum vettvangi og einnig stjórnarmannsins Lisu Murkowski, öldungadeildarþingmanns frá Alaska.

Lisa Murkowski er orðin forseti orkunefndar Öldungadeildarinnar og nú er hennar sérstaklega getið vegna þess að hún ætli að brjóta á bak aftur umhverfisstefnu Obamas forseta með því að þvinga í gegn lagningu svokallaðrar Keystone XL olíuleiðslu.

En Murkowski er ekki sérlega trúuð á að loftslagsbreytingar af mannavöldum séu yfirleitt vandamál – þótt hún sé ein aðalsprautan á bak við Arctic Circle sem einmitt fjallar um heimshluta þar sem áhrif þeirra eru mest áberandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna teflir öllu fram og segir Sjálfstæðisflokkinn geta gert margt betur – „Sorglegt að sjá víða að við förum ekki betur með fé“

Áslaug Arna teflir öllu fram og segir Sjálfstæðisflokkinn geta gert margt betur – „Sorglegt að sjá víða að við förum ekki betur með fé“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum