Saksóknari í Danmörku hefur ákveðið að leggja fram ákæru um guðlast á hendur 42 ára gömlum Dana. Dönsk refsilöggjöf geymir ákvæði um bann við guðlasti. Síðast var lögð fram ákæra samkvæmt því árið 1971. Nú 46 árum síðar er því beitt á nýjan leik. Dagblaðið Jótlandspósturinn (Jyllands Posten) greindi frá þessu í gær.
Tilefnið mun vera það að danskur maður birti 27. desember 2015 myndband á Facebook af því þegar hann kveikti í Kóraninum, sem er eitt helsta helgirit múslima, og lét bókina brenna í garðinum á bak við hús sitt. Myndbandið var birt í opnum Facebook-hóp sem ber heitið „Já við frelsi – Nei við íslam.“ Í texta við myndbandið skrifaði hann:
Hugsið til nágrannans, það kemur fýla þegar hún brennur.
Embætti ríkissaksóknara í Danmörku þykir þetta gefa tilefni til að láta nú reyna á guðlastákvæði dönsku refsilöggjafarinnar:
Það er okkar mat að kringumstæður í þessu máli geri það það verkum að hér beri að leggja fram ákæru, svo að dómstólarnir fái tækifæri til að taka afstöðu til málsins,
segir Jan Reckendorff ríkislögmaður í fréttatilkynningu. Brot á guðlastákvæðinu í dönsku refsilöggjöfinni geta varðað allt fjögurra mánaða fangelsi. Danska ákæruvaldið fer hins vegar ekki fram á að Kóranbrennuvargurinn verði settur á bak við lás og slá en dæmdur í staðinn til greiðslu sektar verði hann fundinn sekur.
Frá því að síðast var dæmt eftir guðlastákvæðinu 1971 hefur nokkrum sinnum verið farið fram á málshöfðanir samkvæmt því en danska ákværuvaldið hefur ávallt vísað því á bug. Það gerðist meðal annars eftir að Jótlandspósturinn og fleiri fjölmiðlar birtu skopteikningar af Múhameð spámanni árið 2006. Þau mál ollu miklu uppnámi, óeirðum og blóðsúthellingum víða um heim.
Á Íslandi var guðlast bannað með lögum samkvæmt 125. grein almennra hegningarlaga og við því lágu sektir eða fangelsi allt að 3 mánuðum. Alþingi afnam þetta ákvæði árið 2015.