Skotar ætla að stórefla skógrækt sína. Kynntar hafa verið fyrir skoska þinginu áætlanir um að stórauka flatarmál lands sem lagt verður undir ný skógræktarsvæði árlega.
Aukningin árlega verður úr 10.000 hekturum (100 ferkílómetrum) nú um stundir í 15.000 hektara (150 ferkílómetra) fyrir árið 2025.
Þetta skógræktarátak hjá Skotum þýðir að þeir herða róðurinn í gróðursetningum nýrra plantna og fara úr 22 milljónum plantna í 33 milljónir árlega. Þetta kemur fram í frétt á vef The Scottish Farmer.
Með þessu hyggjast Skotar stórefla timburiðnað sinn. Í dag starfa rúmlega 25.000 manns við skógrækt og timburvinnslu sem skilar yfir milljarði punda verðmætum á hverju ári. Skotar telja að skógræktin og timuriðnaðurinn skapi mikilvæg störf og verðmætasköpun fyrir hinar dreifðu byggðir landsins. Hún sé umhverfisvæn, ekki síst í tengslum við kolefnisbindingu í baráttu við gróðurhúsaáhrif. Skógarnir hamli einnig gegn flóðum og landeyðingu auk þess sem þeir auki fjölbreytni í útivistarmöguleikum fyrir fólk.
Nú er ársframleiðslan af skoskum trjávörum um 2.2 milljónir rúmmetrar en stefnt verður að því að hún nái þremur milljónum rúmmetra árið 2032.
Í dag eru undir 20 prósent af skosku landi klætt skógum.