fbpx
Laugardagur 23.nóvember 2024
Eyjan

Geta greitt sér 70 milljarða í arð úr Arion banka

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 23. mars 2017 08:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd/Getty images

Með því að endurskipuleggja fjármagnsskipan Arion banka, geta eigendur hans greitt sér allt að 70 milljarða króna arð. Eiginfjárstaða bankans er mjög sterk um þessar mundir, nam ríflega 211 milljörðum um áramótin. Eiginfjárhlutfallið stóð í 27% en eiginfjárkröfurnar sem ríkið krefst nemur 20,7%. Greint er frá þessu í Morgunblaðinu í dag.

Bankanum er einnig heimilt að að gefa út víkjandi skuldabréf til að mæta nokkrum hluta eiginfjárkröfunnar, við ársuppgjör Arion banka sýndu forsvarsmenn bankans fram á að hagstæð samsetning eiginfjár gæti falist í að hlutfall hefðbundins eigin fjár stæði í 16,8% en aðrir hlutar þess í 5,8%.

Í skýrslu sem var kynnt á aðalfundi Arion banka nýverið var sagt að ákveðið hefði verið að greiða ekki út arð að sinni en að stjórn bankans hafi víðtæka heimild til að leggja fram tillögu um arðgreiðslu eða aðra ráðstöfun eigin fjár, því muni stjórnin mögulega boða til að aukahluthafafundar síðar á árinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sér íslenskir skattar og yndi stjórnlyndra flokka

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sér íslenskir skattar og yndi stjórnlyndra flokka