„Ég efast um að það séu önnur dæmi um það í seinni tíð að fjármálaráðherra tali gegn gjaldmiðli eigin lands (nema náttúrulega á Íslandi),“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fv. forsætisráðherra. Tilefnið eru ummæli Benedikt Jóhannessonar fjármálaráðherra á Stöð 2 í hádeginu, þar sem ráðherrann lýsti því yfir að krónan sé ekki heppilegur gjaldmiðill fyrir Ísland til framtíðar.
Benedikt var gestur í þættinum Víglínunni á Stöð 2 og sagði hann ljóst að krónan lagi sig hvorki að þörfum sjávarútvegsins né ferðaþjónustunnar. Þá væru hátæknistörf að tapast úr landi vegna gengis krónunnar.
Sigmundur gefur lítið fyrir ummæli ráðherrans og segir rökin skondin:
„Skondnust eru þó rökin. Áður var krónan sögð ómöguleg vegna þess að hún var of veikur gjaldmiðill og fólk væri að flytja til útlanda af þeim sökum. Nú segir ráðherrann vandamálið vera að krónan sé of sterkur gjaldmiðill og því færist störf úr landi. Hann má þó eiga að hann viðurkennir að með evru þyrftum við að „laga okkur að aðstæðum á vinnumarkaði á evrusvæðinu“. Sem sagt, laga okkur að stórauknu atvinnuleysi og kaupmáttarstöðnun“
Og Sigmundur Davíð bætir við:
„Auðvitað er ekkert að því að velta fyrir sér öllum möguleikum í peningamálum en hvað sem menn stefna á er alltaf verst að byrja á að segjast vera í vonlausri stöðu.“