Norðmenn endurskoða nú stefnumótun sína í ferðaþjónustumálum og búa sig undir flóðbylgju ferðamanna. Gistinóttum erlendra ferðamanna þar í landi fjölgaði um tíu prósent í fyrra samanborið við árið á undan.
Þrátt fyrir góðan vöxt er arðsemi léleg í norskri ferðaþjónustu. Til dæmis er fjórðungur norskra hótela rekin með tapi.
Nú skal stefnt að því að breyta áherslum þannig að sett verði í forgang að veðja á þá ferðamenn sem skapa bæði sjálfbærni og mesta verðmætasköpun.
Einn helsti sérfræðingur Norðmanna í ferðaþjónustumálum varar við því að norsk ferðaþjónusta þróist yfir í „íslenskt ástand.“ Í norskri ferðaþjónustu er nú talað um Ísland sem víti sem beri að varast. Norðmenn líta með hrylling til Íslands:
Við í ferðaþjónustunni tölum mikið saman okkar á milli um það sem er að gerast á Íslandi. Við verðum fyrir alla muni að sjá til þess að við, sem eitt helsta áfangaland í heimi sem byggir á náttúrudjásnum, lendum ekki í þeirri stöðu að forskot okkar í þeim efnum verði eyðilagt vegna of mikils ágangs [ferðamanna] eða ójafnvægis milli þeirra sem búa í landinu og ferðamannanna. Þá verður ferðaþjónustan að vandamáli í stað þess að auðga,
segir Bente Bratland Holm í samtali við norska viðskiptadagblaðið Dagens Næringsliv. Hún er ferðamálastjóri í atvinnuþróunar- og nýsköpunarfyrirtækinu Innovasjon Norge. Það er í ríkiseigu og hefur mikil umsvif í Noregi, meðal annars varðandi opinbera að komu að málefnum ferðaþjónustu og byggðaþróunar.
Í síðustu viku lagði Bente Bratland Holm fram nýja aðgerðaáætlun Innovasjon Norge í ferðaþjónustumálum til framtíðar. Í þeirri stefnumótun verður lögð meiri áhersla á arðsemi í norskri ferðaþjónustu en nokkru sinni fyrr.
Enn sem komið er þá er þetta einungis í frumdrögum en við kjósum þó nokkra skipulega valkosti. Meðal annars þá hefur Visit Norway [Markaðsstofa ferðamála í Noregi] einbeitt sér að frístundaferðaþjónsustu. Nú ætlum við líka að vinna með markaðssetningu í tenglsum við ráðstefnuhald, menningar- og íþróttaviðburði. Menningin skal verða samfléttaður hluti af vöruþróun og markaðssetningu. Á sama tíma ætlum við að verða besta land í heimi fyrir ferðaþjónustu sem byggir á náttúruupplifunum. Sjálfbærni skal verða grunnur alls þess sem við gerum og við ætlum í auknum mæli að kalla saman alla fag- og rekstraraðila sem mynda norska ferðaþjónustu í heild sinni. Við ætlum líka að verða miklu betri í því að mæla samtímaáhrif markaðsherferða um leið og þær eru framkvæmdar en ekki eftir á.
Norðmenn sjá fram á að erlendum ferðamönnum fjölgi stórlega í landinu á næstu misserum. Bente Bratland Holm upplýsir í frétt Dagens Næringsliv að búið sé að selja 26 prósent fleiri flugmiða til Noregs á fyrsta helmingi þessa árs samanborið við sama tímabil 2016 sem þó var mjög gott ár í þessu samhengi.
Allt bendir til að við fáum að minnsta kosti jafn sterka aukingu í ár og við sáum í fyrra. Sömuleiðis bendir allt til að mikil alþjóðleg aukning verði í fjölda ferðamanna. Af þessum sökum verðum við einnig að hugleiða hvers konar áskoranir muni mæta okkur ef allt það ferðafólk kemur sem nú stefnir í,
segir Bente Bratland Holm ferðamálastjóri.