Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,4% í ágúst frá fyrri mánuði, miðað við þá spá muni verðbólga því aukast úr 1,8% í 1,9% í ágúst. Útlit sé fyrir að verðbólgan verði við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans í kring um næstu áramót, en verði síðan að jafnaði rétt um 3,0% út árið 2019.
Hækkandi íbúðaverð vegur hvað þyngst til hækkunar á vísitölunni í ágúst. Reiknuð húsaleiga, sem endurspeglar að mestu þróun íbúðaverðs, vegur til 0,18% hækkunar vísitölunnar. Í heild vegur húsnæðisliðurinn til 0,23% hækkunar í ágúst.
Nú þegar farið sé að síga á seinni hluta sumarútsala, munu þá áhrif útsöluloka í fata- og skóverslunum vega til 0,19% hækkunar á vísitölu neysluverðs samkvæmt spá Íslandsbanka. Útsölulok skýri einnig að mestu 0,04% hækkunaráhrif vegna húsgagna og heimilisbúnaðar í ágústspánni.
Verðhækkun á mat- og drykkjarvörum vegur til 0,04% hækkunar á vísitölunni, þá vegur hækkandi eldsneytisverð einnig til 0,04% hækkunar vísitölunnar í mánuðinum. Skýringin í báðum tilfellum sé að mestu lækkandi gengi krónu frá júníbyrjun.
Hins vegar sé útlit er fyrir að flugfargjöld lækki talsvert í ágúst eftir ríflega 20% hækkun í júlí. Þá standa enn yfir útsölur í ýmsum tegundum verslana, og koma áhrif þeirra fram að nokkru leyti í ágúst, ekki síst í verði raftækja. Aðrir liðir vega samanlagt til 0,11% hækkunar vísitölunnar í mánuðinum.