fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Brynjar Níelsson um RÚV: „Óeðlileg tímaskekkja“ -„Röknum úr rotinu“

Trausti Salvar Kristjánsson
Sunnudaginn 8. apríl 2018 13:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Mynd/DV

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerir ríkisrekna ljósvaka- og netmiðla að umfjöllunarefni sínu á Facebooksíðu sinni í dag. Hann segir menn í evrópu vera að átta sig á hversu mikil „tímaskekkja“ þeir séu og fullkomlega „óeðlilegir“ út frá jafnræðis- og samkeppnissjónarmiðum. Hann segir menningar- og öryggisrökin fyrir tilvist RÚV úr sér gengin:

„Í evrópu eru menn að átta sig á hversu mikil tímaskekkja ríkisreknir ljósvaka- og netmiðlar eru. Og ekki bara timaskekkja heldur fullkomlega óeðlilegt út frá jafnræðis-og samkeppnissjónarmiðum. Eins og oft áður eru danir fyrstir að rakna úr rotinu. Á Íslandi eru menningar- og öryggisrökin fyrir tilvist RUV úr sér gengin sem og rökin fyrir aðgengi allra að ljósvakamiðlum. Kannski að hollvinir RUV reyni að beita lýðheilsusjónarmiðum eins og við hollvinir ÁTVR gerum fyrir einkasölu ríkisins á áfengi.“

Brynjar vill taka RÚV af fjárlögum, í skrefum, þar sem þeir fimm milljarðar sem skattgreiðendur borga fyrir RÚV árlega, nýtist betur annarsstaðar:

„Eftir stendur að „sumir“ skattgreiðendur þurfa að punga út á fimmta milljarð árlega í óþarfa. Við, sem höfum áhuga á að dreifa peningum annarra eftir eigin geðþótta, getum hugsað okkur betri nýtingu á þessu fé. Auk þess tekur ríkismiðillinn lungan af auglýsingatekjum, sem gerir frjálsa fjölmiðlun nær ómögulega. Röknum úr rotinu þótt ekki verði tekin nema lítil skref í byrjun.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur