Þorbjörn Þórðarson, fréttamaður Stöðvar 2, tísti í morgun á Twitter, að hann skildi ekki gagnrýni Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar, á fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í vikunni.
Gagnrýni Loga hafði yfirskriftina „Hin gleymdu“ og vildi hann meina að ríkisstjórnin hefði gleymt öldruðum og öryrkjum, sem og hinum tekjulægstu í samfélaginu:
„Í dag var kynnt fimm ára fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, í 384 blaðsíðna bók, sem gæti allt eins heitið Hin gleymdu. Í henni er boðuð lækkun á neðra skattþrepi sem mun skila tekjulágum þrefalt minna en þeim tekjuhæstu. Þá eru hugmyndir um að verja fjármagnseigendur, einn hópa, gegn áhrifum verðbólgu, með nýrri útfærslu á fjármagnstekjuskatti. Barnabætur og vaxtabætur haldast algjörlega óbreyttar – næstu fimm árin. Það er reyndar þvert á fyrri loforð forsætisráðherra. Hækkuð framlög til öryrkja og aldraðra eru nánast eingöngu til að mæta fjölgun í þessum hópum. Þá er fjármagni til byggingu leiguíbúða, fyrir tekjulága, lækkað um helming á næstu árum. Í áætluninni birtist hægri stefna þar sem tekjuháum og fjármagnseigendum er hyglt á kostnað á lág- og millitekjuhópa. Í blússandi góðæri gleymast þeir tekjulægstu, eina ferðina enn.“
Þorbjörn sagðist ekki skilja þessa gagnrýni Loga:
„Ég skil ekki gagnrýni Loga Einarssonar á fjármálaáætlunina. Það leiðir af eðli máls að ef tekjuskattur lækkar um 1 prósentustig þá aukast ráðstöfunartekjur þeirra sem hafa hærri laun meira en þeirra tekjulægstu í krónum. Báðir hagnast samt á lækkuninni. Hvað er eiginlega málið?“
Logi svarar þessu á Facebooksíðu sinni, segir sér það bæði ljúft og skylt:
„Mér finnst einfaldlega ekki réttlátt að við sem þénum mest fáum þrisvar sinnum meira í skattaafslátt en einstaklingur á lágmarkslaunum. Fólk á lágum og millitekjum berst í bökkum í hverjum mánuði við að ná endum saman og ef eitthvað út af bregður lendir það í stórkostlegum vandræðum. Í stað þess að lækka skatta á okkur sem höfum nóg, ætti að verja þeim 14 milljörðum sem aðgerðin kostar til að styðja beint við þá sem minnst bera úr bítum í samfélaginu. Ég get nefnt barnabætur, vaxtabætur, hærri persónuafslátt eða grunnlífeyri aldraðra og öryrkja. Svo einfalt er nú það.“
Ég skil ekki gagnrýni Loga Einarssonar á fjármálaáætlunina. Það leiðir af eðli máls að ef tekjuskattur lækkar um 1 prósentustig þá aukast ráðstöfunartekjur þeirra sem hafa hærri laun meira en þeirra tekjulægstu í krónum. Báðir hagnast samt á lækkuninni. Hvað er eiginlega málið?
— Þorbjörn Þórðarson (@thorbjornth) April 6, 2018