Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, hélt ræðu á aðalfundi Isavia í gær, hvar hann vék meðal annars að innanlandsfluginu. Auknu fé verður varið til viðhalds flugvalla, sem og að gera innanlandsflug að hagkvæmari kosti fyrir íbúa landsbyggðanna, ef marka má fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Þá hefur starfshópur undir stjórn Njáls Trausta Friðbertssonar alþingismanns unnið að því að finna leiðir til að ná fram hagkvæmari rekstri á innanlandsflugi og skilvirkari rekstri flugvalla, með það að augnamiði að lækka flugfargjöld. Niðurstöður er væntanlegar á næstunni.
Sigurður Ingi talaði fyrir „skosku leiðinni“, það er, að ríkið niðurgreiði flugfargjöld:
„Fyrir almenning þurfa flugfargjöld að lækka svo innanlandsflug verði raunhæfur valkostur. Ég hef talað fyrir því að fara svipaða leið og Skotar hafa farið til að greiða niður farmiðakaup íbúa á landsbyggðinni. Vandamálið er hins vegar að samkeppni á flugleiðum innanlands er ekki nægjanleg og krefst meira aðhalds í verðmyndun á fargjöldum. Við verðum að finna leiðir að ásættanlegri lausn sem kæmi ekki aðeins íbúum svæðanna til góða heldur einnig atvinnulífinu, ekki hvað síst ferðaþjónustunni. Áskorunin er að auka flugumferð til að efla samgöngur á milli landsbyggða og höfuðborgarsvæðisins og jafna aðgengi íbúa landsins að grunnþjónustu s.s. heilbrigðisþjónustu. Þar gegnir Reykjavíkurflugvöllur mikilvægu hlutverki sem einn af tengipunktum landsbyggðar við þessa þjónustu.“
sagði Sigurður Ingi. Hann vill fjölga ferðamönnum sem nota innanlandsflug og sér fyrir sér samstarf ríkis og einkageirans:
„Mikilvægt er að við töpum ekki sjónar á markmiðinu, hvert er stefnt. Með markvissu átaki og hvatakerfi tókst að fjölga farþegum utan sumartíma. Á sama hátt eigum við að sameinast um að setja markmið um að fjölga farþegum í innanlandsflugi. Notendur, flugrekendur og flugvallarekendur verða að hafa sameiginlega hvata og hagsmuni af fluginu. Meðal hugmyndanna er að alþjóðaflugvellir landsins yrðu felldir undir umsjón Isavia og geti til lengri tíma orðið fjárhagslega sjálfbærir og notið góðs af fjárhagslegum styrk félagsins sem hefur þekkingu og trú á rekstrinum. Slíkt samtal þarf að eiga sér stað með fulltrúum Isavia, hvernig hægt er að fjölga ferðamönnum sem notfæra sér innanlandsflugvelli landsins sem styðji við rekstrargrunn þeirra. Hvatarnir þurfa að vera sameiginlegir og þurfa flugvallarekendur og flugrekendur að stefna að sameiginlegu markmiði. Ef af verður mætti t.d. hugsa sér að ríkið og einkageirinn komi saman að þessari þróun með ýmsum hætti sem tengjast rekstri eða fjárfestingarframlögum.“