Stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna hefur sent frá sér ályktun þar sem fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er gagnrýnd og hlutur Sjálfstæðisflokksins er þar ekki undanskilinn, en nefnt er að ríkisútgjöld hafi aukist síðastliðin ár með fordæmalausum hætti undir stjórn sjálfstæðisflokksins. Er þá sérstaklega harmað hversu mikið ríkisútgjöld muni hækka á næstunni, eða um 25% á næstu fimm árum. Þá er hækkun á kolefnisgjöldum gagnrýnd, þar sem það muni koma verst niður á efnalitlum einstaklingum og fjölskyldum, sérstaklega á landsbyggðinni. Einnig er settur varnagli við hækkun skatta á ferðaþjónustu, þegar séu komin fram hættumerki vegna mikils kostnaðar ferðamanna við að koma til landsins.
Ályktunina má lesa í heild sinni hér að neðan:
„Samband ungra sjálfstæðismanna fagnar því að í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sé gert ráð fyrir lækkun bankaskatts, tryggingagjalds, endurskilgreiningu á skattstofni fjármagnstekjuskatts og lægra skattþrepi tekjuskatts. Ennfremur er sérstaklega ánægjulegt að haldið verði áfram að greiða niður skuldir ríkissjóðs, framtíðarkynslóðum Íslendinga til heilla.
SUS harmar þó hversu mikið ríkisútgjöld muni hækka á komandi árum. Verði fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar að veruleika munu ríkisútgjöld aukast um 25% frá 2018 til 2023. Síðustu ár hafa ríkisútgjöld aukist með nær fordæmalausum hætti undir stjórn Sjálfstæðisflokksins og útlit er fyrir að því muni ekki linna. Ljóst er að sá mikli ábati sem hefur hlotist sl. ár í efnahagslífinu skilar sér fremur til báknsins heldur en til einstaklinga og fyrirtækja í formi skattalækkana. Það er miður, því fé er betur ávaxtað í höndum einstaklinga heldur en embættismanna.
Þá telur SUS fyrirhugaðar hækkanir á kolefnisgjöldum á eldsneyti til þess fallnar að koma verst niður á efnalitlum einstaklingum og fjölskyldum, þá sérstaklega á landsbyggðinni. Notkun bifreiða er agnarsmár hluti af kolefnislosun Íslands en skatturinn hefur teljandi áhrif á hag heimila í landinu.
Ennfremur setur stjórn SUS verulegan varnagla við hækkun skatta á ferðaþjónustu. Það er fjarri sönnu að ferðamenn greiði ekki ríflega skatta þegar þeir koma til landsins. Þá er um að ræða atvinnuveg sem er í beinni samkeppni við ferðaþjónustu í öðrum löndum, en nú þegar eru hættumerki komin fram í ferðaþjónustu vegna þess hve dýrt það er að koma til landsins sem ferðamaður.“