fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Óskað eftir tilnefningum til nýsköpunarverðlauna í opinberri þjónustu og stjórnsýslu 2018

Trausti Salvar Kristjánsson
Fimmtudaginn 5. apríl 2018 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýsköpunarverðlaun í opinberri þjónustu og stjórnsýslu 2018 verða afhent á ráðstefnu um nýsköpun föstudaginn 8. júní 2018. Yfirskrift verðlaunanna í ár er „Betri opinber þjónusta með öflugu samstarfi og nýtingu stafrænna lausna“ en verðlaunin og ráðstefnan eru samvinnuverkefni fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Félags forstöðumanna ríkisstofnana, Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands.

Frestur til 4. maí

Frestur til að skila tilnefningum til nýsköpunarverðlaunanna er til 4. maí 2018. Með nýsköpunarverkefni er átt við nýjungar eða verulegar breytingar sem opinber aðili hefur innleitt og geta falist í nýrri eða verulega breyttri þjónustu, ferlum, skipulagi, vöru eða samskiptaleiðum. Verkefnið er því nýtt fyrir viðkomandi vinnustað og skapar virði í formi aukinna gæða, skilvirkni, starfsánægju eða aukinnar þátttöku almennings.

Sveitarfélög og stofnanir geta tilnefnt eitt eða fleiri verkefni til nýsköpunarverðlaunanna. Tilnefndum verkefnum þarf að hafa verið hrint í framkvæmd á sl. þrem árum (undirbúningur getur hafa staðið lengur) og greinanlegur árangur þarf að hafa náðst. Tilnefningum skal skilað í umsóknakerfi Rannís. Allar innsendar tilnefningar verða birtar á vef Stjórnarráðsins.

Í tilnefningarforminu er m.a. gert ráð fyrir að eftirfarandi komi fram:

  • Stutt lýsing á verkefninu
  • Hver var hvatinn að verkefninu
  • Hvaðan kom hugmyndin að verkefninu
  • Lýsing á þróunar- og innleiðingarferli
  • Hver var ávinningur verkefnisins fyrir almenning/notendur og stofnunina/sveitarfélagið
  • Hvernig var ávinningur metinn?
  • Hver var lærdómurinn af verkefninu
  • Hvort verkefnið geti nýst öðrum stofnunum/sveitarfélögum

Stofnanir og sveitarfélög eru sérstaklega hvött til að tilnefna verkefni sem byggja á nýjum samstarfsleiðum eða nýtingu einhvers konar stafrænna lausna. Allar tegundir verkefna eru þó gjaldgengar.

Dómnefnd fer yfir innsend verkefni og metur þau út frá eftirfarandi þáttum:

  • Nýsköpunargildi verkefnis
  • Þróun og framkvæmd
  • Virði fyrir almenning/notendur
  • Virði fyrir stofnun/sveitarfélag
  • Notagildi verkefnisins fyrir aðrar stofnanir/sveitarfélög
  • Rekstrarlegur ávinningur verkefnisins

Vakni spurningar má hafa samband við Mjöll Waldorff hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, mjoll@nmi.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur