Markmið og viðmið um gæði starfs á frístundaheimilum fyrir 6-9 ára börn hafa nú í fyrsta sinn verið gefin út á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Þetta er gert í samræmi við ákvæði í lögum um grunnskóla sem samþykkt voru á Alþingi í júní 2016.
Starfsemi frístundaheimila hefur þróast á ýmsan veg frá árinu 1995 þegar heimildarákvæði var sett grunnskólalög. Í kjölfar lagasetningar 2016 stofnaði ráðuneytið starfshóp, sem hafði það hlutverk að vinna viðmið um gæði frístundastarfs, þ.m.t. um hlutverk og markmið, skipulag og starfsaðstæður, starfshætti, margbreytileika, stjórnun og menntun starfsfólks.
Leiðarljós frístundaheimila fyrir 6–9 ára börn er að bjóða þeim upp á þátttöku í fjölbreyttu frístunda- og tómstundastarfi með það að markmiði að efla sjálfstraust og félagsfærni þeirra. Einnig er lögð áhersla á að umhverfi starfsins einkennist af öryggi, fagmennsku og virðingu þar sem jákvæð samskipti og lýðræðislegir starfshættir eru í hávegum hafðir í samræmi við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
,,Mikilvægur áfangi er í höfn sem snýr að því að samræma kröfur til starfsemi frístundaheimila og stuðla að þróunarstarfi um land allt í útfærslu og aukinni samþættingu skóla- og frístundastarfs fyrir yngri nemendur í grunnskólum,“
segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Opið samráð var viðhaft við mótun tillagnanna á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Þetta var gert til að til að tryggja sem mestan samhljóm meðal allra þeirra sem koma að vinnu frístundaheimila. Í innsendum ábendingum komu alls staðar fram jákvæð viðhorf við gerð markmiða og viðmiða, umsagnaraðilar fögnuðu verkefninu og töldu það vera mikilvægt skref til að efla faglegt starf frístundaheimila og auka þróunarstarf í heimabyggð. Fyrirhuguð er kynning á viðmiðunum og innleiðing.
Skýrslu starfshópsins með viðmiðunum má lesa hér á vef ráðuneytisins.