fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Eyjan

Daði leiðir Framsókn í Garði/Sandgerði

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 3. apríl 2018 16:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Daði Bergþórsson

B-listi Framsóknar og óháðra í sameiginlegu sveitarfélagi Garðs og Sandgerðis hefur verið
samþykktur vegna sveitarstjórnarkosninganna þann 26. maí næstkomandi. Á listanum eru 10
konur og 8 karlar, þar af eru 3 konur í efstu 4 sætum listans.
Núverandi bæjarfulltrúi B-listans í Sandgerði, Daði Bergþórsson, leiðir listann. Í öðru sæti er
Álfhildur Sigurjónsdóttir, varabæjarfulltrúi og tollmiðlari, og í því þriðja er Thelma Dögg
Þorvaldsdóttir, myndlistarkennari. Í heiðurssæti listans er Guðmundur Skúlason, bæjarfulltrúi,
en hann hefur leitt B-listann í Sandgerði frá árinu 2010.

„Ég er gífurlega ánægður með þennan fjölbreytta og vel skipaðan framboðslista. Málefnavinna
er að fara í gang og hvetjum við alla áhugasama bæjarbúa að taka þátt í því með okkur. Mikil
tilhlökkun og gleði er ríkjandi í framboðshópnum og vilji til að fylgja eftir sameiningu Garðs og
Sandgerðis með mikilli og góðri uppbyggingu og gera gott samfélag enn betra. Ég fer bjartsýnn
inní baráttuna og vongóður um góða niðurstöðu“,

segir Daði Bergþórsson oddviti B-lista Framsóknar og óháðra.

Framboðslisti Framsóknar og óháðra í sameiginlegu sveitarfélagi Garðs og Sandgerðis:
1.     Daði Bergþórsson, bæjarfulltrúi og deildarstjóri
2.     Álfhildur Sigurjónsdóttir, varabæjarfulltrúi og tollmiðlari
3.     Thelma Dögg Þorvaldsdóttir, myndmenntakennari
4.     Erla Jóhannsdóttir, grunnskólakennari
5.     Eyjólfur Ólafsson, varabæjarfulltrúi og rafeindavirkameistari
6.     Úrsúla María Guðjónsdóttir, laganemi
7.     Guðrún Pétursson, flugverndarstarfsmaður
8.     Unnar Már Pétursson, vaktstjóri
9.     Jóna María Viktorsdóttir, þjónustufulltrúi
10. Jónas Eydal Ármannsson, framhaldsskólakennari
11. Aldís Vala Hafsteinsdóttir, viðskiptafræðinemi
12. Sigurjón Elíasson, tækjastjóri
13. Berglind Mjöll Tómasdóttir, varabæjarfulltrúi og vaktstjóri
14. Bjarki Dagsson, kerfisstjóri
15. Hulda Ósk Jónsdóttir, verkstjóri
16. Jón Sigurðsson, bóndi
17. Ólöf Hallsdóttir, húsmóðir
18. Guðmundur Skúlason, bæjarfulltrúi og aðstoðarvarðstjóri

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur