fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Eyjan

Mannfjöldaspá Byggðarstofnunar til 2066: Fjölgar í borginni, fækkar úti á landi

Trausti Salvar Kristjánsson
Mánudaginn 26. mars 2018 17:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd/DV

Byggðastofnun hefur gert mannfjöldaspá til ársins 2066 fyrir sérhvert sveitarfélag á Íslandi. Um er að ræða niðurbrot miðspár Hagstofu Íslands fyrir allt landið á sveitarfélög, að því er segir í tilkynningu.

Stóra myndin sem dregin er upp í mannfjöldaspá Byggðastofnunar er fólksfjölgun á höfuðborgarsvæðinu samfara stöðugri fólksfækkun víða í landsbyggðunum. Helstu ástæðurnar eru samverkandi áhrif lækkandi frjósemishlutfalls og flutningur ungs fólks á höfuðborgarsvæðið sem ekki skilar sér aftur til baka. Einnig breytist aldurssamsetning þjóðarinnar samkvæmt spánni og t.d. má búast við að hlutfall þeirra sem eru eldri en 65 ára hækki úr 13,0% árið 2017 og verði á milli 20 og 30% í lok spátímabilsins. Hér verður auðvitað að hafa í huga að spá sem þessi tekur ekki mið af mögulegum mótvægisaðgerðum eða öðrum breytingum sem væru til þess fallnar að hafa staðbundin áhrif.

Spáin byggir á gögnum frá Hagstofu Íslands um fæðingar- og dánartíðni frá árinu 1971 og búferlaflutninga frá 1986. Þróað var mannfjöldalíkan sem byggir á þekktum aðferðum sem nota eingöngu söguleg gögn til að spá fyrir um framtíðina. Það er því ekki notast við nein sérfræðiálit eða fyrirfram gefnar forsendur um líklega þróun heldur byggir spáin á því að fram haldi sem horfir m.t.t. inntaksgagna. Líkanið er slembilíkan og niðurstöður eru settar fram sem meðaltal og 80% spábil 10.000 mögulegra mannfjöldaþróunarferla. Ákveðið var að láta miðspá Hagstofu Íslands ráða mannfjöldaþróun fyrir allt Ísland og því voru niðurstöðurnar skalaðar við miðspána í stað þess að setja þær fram sem óháða mannfjöldaspá. Því er um að ræða niðurbrot miðspár Hagstofunnar á sveitarfélög.

Mikilvægt að reyna að gera sér grein fyrir því hvert stefnir svo skipuleggja megi aðgerðir til að hafa áhrif á þróunina. Með þessu hefur Byggðastofnun brugðist við eftirspurn sem er fyrir hendi jafnt innan Byggðastofnunar sem utan, um mannfjöldaspá minni svæða á Íslandi. Líta verður á þetta frumkvæði Byggðastofnunar sem fyrstu tilraun til að gera svæðisbundnar mannfjöldaspár, sem eflaust á eftir að endurbæta og þróa enn frekar í nánustu framtíð.

Stíga verður varlega til jarðar þegar ályktanir eru dregnar af þessari spá því óvissa hennar er töluverð. Hún gæti gefið þokkalega mynd af mannfjöldaþróun til skemmri tíma, t.d. 15 ára, en taka verður niðurstöðum til lengri tíma með meiri fyrirvara.

Nánar er hægt að fræðast um mannfjöldaspá Byggðastofnunar í skýrslu sem gefin hefur verið út og má nálgast HÉR.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur