fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Eyjan

Segja sjálftöku launa stjórnenda vera ögrun við launafólk

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 21. mars 2018 16:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðbrandur Einarsson, formaður LÍV

Stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna hefur sent frá sér ályktun þar sem sjálftöku launa stjórnenda í íslenskum fyrirtækjum er mótmælt harðlega og er hún sögð ögrun við launafólk.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn LÍV:

 

 

 

Stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmannamótmælir harðlega þeirri
sjálftöku launa sem á sér stað meðal stjórnenda í íslenskum fyrirtækjum. Allt frá
því að kjararáð gaf tóninn með hækkun launa til þingmanna og forstöðumanna
stofnana hefur orðið til hyldýpi milli þessara aðila og launafólks.
Þrátt fyrir að ákvörðunum kjararáðs hafi verið mótmælt harðlega og þrátt fyrir
að ríkisstjórninni hafi gefist kostur á að leiðrétta þessa óhæfu, þá reyndist hún
ekki hafa þann kjark sem til þurfti þegar að á reyndi.
Á sama tíma er því haldið að launafólki að vera hófstillt í launakröfum til þess
að viðhalda stöðugleika í samfélaginu. Það ríkir hins vegar ekki stöðugleiki hjá
íslensku launafólki sem þarf á sama tíma að takast á við skerðingar barna- og
vaxtabóta og raunlækkunar á persónuafslætti sem ekki fylgir almennri
launaþróun og hefur ekki gert í áraraðir.
Slík ögrun verður ekki liðin og mun valda upplausn á almennum vinnumarkaði
verði ekkert að gert.

Stjórn LÍV skorar stjórnvöld og stjórnir lífeyrissjóða að vinda ofan af þessari
þróun aukinnar misskiptingar.

Reykjavík, 21. mars 2018
F.h. stjórnar LÍV

Guðbandur Einarsson, formaður LÍV og Verslunarmannafélags Suðurnesja
Kristín M. Björnsdóttir, varaformaður LÍV og formaður deildar verslunarmanna VR á Austurlandi
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR
Eiður Stefánsson, formaður Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri
Hjörtur Geirmundsson, formaður Verslunarmannafélags Skagafjarðar
Gils Einarsson, formaður deildar verslunarmanna VR á Suðurlandi
Svanhildur Þórsteinsdóttir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“