fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Eyjan

Pawel um spítalatillögu Sigmundar Davíðs: „Vond hugmynd“

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 21. mars 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pawel Bartoszek

Pawel Bartoszek, sem skipar 2. sæti framboðslista  Viðreisnar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar, skrifar pistil í Fréttablaðið í dag, þar sem hann útskýrir af hverju hann telur það vonda hugmynd ef Landspítalinn verði færður í „úthverfi Garðabæjar“.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hefur lengi talað fyrir þeirri hugmynd að byggja nýjan spítala á Vífilstöðum, eða á Keldum, meðal annars til að létta á umferð inn í miðborgina.

Pawel segir hinsvegar að slíkt muni stórauka bílaumferð:

„Umferð er ekki bara einkabílar. Umferð er líka þeir sem labba, hjóla eða taka strætó. Sé litið á umferðina í þessum eðlilega, víða, skilningi er flutningur Landspítalans frá Reykjavík til úthverfa Garðabæjar vond hugmynd.

Þótt sumir hæðist stundum að því að fólk geti komist á spítala öðruvísi en á bíl hefur Landspítalinn engu að síður náð góðum árangri þegar kemur að því að hvetja starfsfólkið til að nota fjölbreyttari samgöngumáta.

Samkvæmt ferðavenjukönnun spítalans frá árinu 2016 fóru 29% starfsmanna oftast gangandi eða hjólandi í vinnuna. Enda má ætla að um 20.000 manns búi í göngufæri við spítalann. Það býr enginn í göngufæri við Vífilsstaði. Hvort halda menn að gangandi eða hjólandi starfsmönnum muni fækka eða fjölga ef við flytjum spítalann þangað?“

Pawel vísar í könnun þar sem fram kemur að yfir 10% starfsfólks Landspítalans taki strætó í vinnuna:

„Samkvæmt sömu könnun tóku yfir 10% starfsmanna Landspítalans oftast strætó í vinnuna. Landspítalinn liggur nú í hjarta leiðakerfis Strætó. Þaðan eru beinar tengingar við flesta kima höfuðborgarsvæðisins. Í dag fer ein leið, leið 21, fram hjá Vífilsstöðum. Hvort halda þeir sem vilja flytja spítalann að þeim fjölgi eða fækki sem nota strætó ef spítalinn verður fluttur austur fyrir Reykjanesbrautina?

Það mætti kannski kalla það aðdáunarverða fórnfýsi sumra framboða í Reykjavík að vilja flytja einn stærsta vinnustað borgarinnar í annað sveitarfélag til að „létta á umferðarálagi“. En staðreyndin er sú að umferðin mun ekki skána við það að spítalinn verði fluttur út í jaðar höfuðborgarsvæðisins. Eina sem gerist er að þúsundir starfsmanna spítalans sem í dag labba, hjóla, eða taka strætó í vinnuna verða neyddir til að fara á bíl.“

 

Í gær á Stöð 2 sagðist Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti nýs lista Viðreisnar í Reykjavík, ganga óbundin til kosninga og vilja vinna með öllum flokkum.

Ljóst er að samkvæmt þessu er að minnsta kosti einn stór og þungur ásteytingarsteinn sem gæti gert samstarf flokkanna erfitt.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“